Lögbók Íslendinga hverja sama nú hefur sett Magnús Noregs kóngur svo sem hans bréf og formáli vottast: Skrifuð á Mýri á Snjáfallaströnd. Anno 1531 af Bjarna Jónssyni. (Bl. 1r).
„Magnús kóngs bréf“
„Magnús með Guðs miskunn Noregs kóngr son Hákonar ...“
„... er orð mín hefur. FINIS“
„ Var þessi lögbók skrifuð í sama stað og ári sem fyr segir og enduð þann 24. mars sem var hinn næsti dagur fyrir boðunar dag Maríu: Bjarni Jónsson (Bl. 87r).“
Bl. 3r : I: Þingfararbálkur Bl. 8v : Kristinsdómsbálkur Bl. 13r : II: Kóngs þegnskylda Bl. 15r : III: Mannhelgi Bl. 25v : IV: Kvennagifting Bl. 28r : Erfðatal Bl. 35v : Framfærslubálkur Bl. 40v : V: Landabrigðabálkur Bl. 44r : VI: Landsleigubálkur Bl. 62v : VII: Rekabálkur Bl. 67r : VIII: Kaupabálkur Bl. 74v : IX: Farmannalög Bl. 82r : X: Þjófabálkur
Með einni hendi, Bjarni Jónsson, blendingsskrift.
Titilsíða er skreytt með ramma utan um texta, með rauðum og grænum lit (bl. 1r.)
Skrautbekkur um titil með rauðum og grænum lit (bl. 1r.)
Stórir, litaðir upphafstafir með blómamynstri (bl. 8v, 15r, 28v, 41r, 44r, 63r, 67r, 74v, 82r).
Stórir, litaðir upphafstafir með drekum og blómum (bl.1v, 3v, 13v, 26r, 36r.)
Upphafsstafir eru litaðir og skreyttir með rauðu, bláu, grænu og gulu bleki í upphafi hverjar efnisgreinar (sjá bl. 4v, 5v, 65v).
Minni upphafsstafir eru litaðir með rauðu, bláu eða grænu bleki, sumir skreytir (sjá bl. 10r, 30r).
Fyrirsagnir eru ritaðar með rauðu bleki (sjá bl. 1v, 3r).
Pennateikning með rauðu og/eða svörtu bleki (sjá t.d. bl. 3r, 8v, 13r, 74r), 81r, 81v).
Rauðar pennateikningar/flúr inn á milli texta (sjá t.d. bl. 2r-3r, 41v-42r).
Teiknuð hendi á spássíu (bl. 19r, 32r, 36v-37r, 37v, 39r, 40r, 45r, 53r, 54v, 56r, 56v, 58v-59r, 64r, 66r, 66v, 68r, 84r).
Bókahnútar (bl. 13r, 35v, 40v, 81r, 81v, 87r).
Upprunalegt band (182 mm x 150 mm x 34 mm).
Spjöld klædd ljósu skinni, saurblöð fylgja bandi. Á kili er skrifað „ Island | Lowbog | iii | Jonsbok“
Handritið er í dökk sægrænni öskju með leður kili, þar sem þrykkt er safnmark með gyllingu (200 mm x 170 mm x 48 mm).
Handritið er snjáð.
Handritið er skrifað á Íslandi, nánar á Mýri, Snæfjallahreppi.
Á titilsíðu er ártalið „1531“, en sennilega hefur því verið breytt úr 1631, sjá P. Springborg (1969), Nyt og gammelt fra Snæfjallaströnd, s. 297-298, 306, 308-309 og Gísla Baldur Róbertsson (2010), Nýtt af Bjarna Jónssyni lógbókarskrifara á Snæfjallaströnd, s. 367.
Handritið er tímasett 1531 í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 844 sem er ekki rétt ártal eins kemur fram hér fyrir ofan.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 14. nóvember 2023 ; uppfærði skráningu 25. janúar 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 273.