„Páll Vídalín um alin og meðal-mann Alin að lengd meðalmaður.“
„Landsleigub. 7. Alnarkefli. ...“
„... ef sönn væri yðar trú um rýrnan vaxtar manneskjanna.“
Jón Vídalín (1854), Skýringar yfir fornyrði lögbókar þeirrar er Jónsbók heitir, s. 16-55.
„Exsripsit(!) Hafniæ die 24. dec. 1751. Jo.M. (Bl. 33v).“
„Kominn er eg til arna / Yngvars er beð lingva ...“
„... lins óðar smið finna.“
Eitt erindi.
„Það mælti mín móðir / að mér fá skyldi ...“
„... höggva mann og annan.“
Eitt erindi.
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-66.
9 kver:
Ein hönd, Jón Marteinsson, fljótskrift.
Á fremra spjaldi er gamalt safnmark og stimpill sem á stendur: „Bibliotheca Regia Hafniensis.“
Upprunalegt band (249 mm x 193 mm x 9 mm).
Handritið er í ljósgrárri öskju (álímt efni) (270 mm x 208 mm x 25 mm). Límmiði á kili með safnmarki.
Handritið er snjáð.
Límmiði á kápu.
Blað með (kveraskiptingum) og (saumum fyrir bókband), eftir Morten Grønbech.
Handritið var skrifað 24. desember 1751 í Kaupmannahöfn (bl. 33v).
Það er tímasett til 18. aldar í Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifte, nr. 851.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.
Var áður í Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 15. nóvember 2023 ; yfirfarið 25. janúar 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 275.