Handritið er skrifað eftir Vatnshyrnu (sjá athugasemd Guðbrands Vigfússonar í AM 477 fol.).
„Oddur hét maður Önundarson …“
„… og var hinn mesti kvenskörungur“
og lýkur þar Hænsa-Þóris sögu.
Gömul blaðsíðumerking 1-45. Blöð 24v-25v eru ótölusett.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift undir áhrifum frá fljótaskrift.
Band frá árunum 1880-1920 (210 mm x 168 mm x 8 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Blár safnmarksmiði á kili.
Saurblöð tilheyra bandi.
Áður klætt bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá um 1600. Á bókfellinu er brot úr Framfærslubálki.
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett frá hausti 1686 til hausts 1688 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og til um 1700 í Katalog I , bls. 667, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707
Eitt blað í fólíó af sömu sögu með hendi séra Jóns Erlendssonar í Villingaholti hefur legið með þessu handriti en er nú í AM 165 f fol.(sjá AM 477 fol.).
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 12. júní 1986.
VH lagfærði í nóvember 2010.
ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P5 2.-4. febrúar 2009 og síðar.
ÞS færði inn grunnupplýsingar 8. júlí 2001.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 24. júní 1887(sjá Katalog I 1889:667 (nr. 1273) .
Viðgert í Kaupmannahöfn í maí 1986.
Bundið á árunum 1880-1920.