Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

Lbs 457 fol.

Ættartölubók ; Island, 1670-1699

Tekstens sprog
islandsk

Indhold

Ættartölubók
Bemærkning

Ættartölubók eftir Jón Gunnlaugsson á Skjöldólfsstöðum um 1684, umbætt og aukin af Sigurði Jónssyni á Höskuldsstöðum í Breiðdal, en hann hafði áður verið lögréttumaður í Hegranesþingi.

Á fáeinum stöðum bregður fyrir hendi Árna prófessors Magnússonar í athugasemdum.

Bókin hefur að geyma lauslegar ættarrakningar frá nokkrum heldri mönnum.

Nokkrar lausavísur um nytsemi ættartalna eru þar (næst eftir formála) eftir síra Gunnar Árnason að Stafafelli, Hallgrím Jónsson Thorlacius (síðar sýslumann) og síra Guðmund Högnason að Hofi í Álftafirði.

Titilblað og efnisskrá er framan við með hendi Páls stúdents Pálssonar.

Bókin hefur hingað til verið talin frumrit (ekki er nefnt, hvort heldur Jóns á Skjöldólfsstöðum eða Sigurðar á Höskuldsstöðum), en ekki verður betur séð en að hún sé með hendi Jóns sýslumanns Þorlákssonar í Berunesi, og honum var bókin ætluð, sbr. formála Jóns á Skjöldólfsstöðum framan við.

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 1 // >Mótmerki: Fangamark DI (á víð og dreif á blöðum 1-45).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 2 // Ekkert mótmerki (á víð og dreif á blöðum 8-46).

Vatnsmerki 3. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 3 // Mótmerki: Bókstafir (...DIM?) (49-50).

Vatnsmerki 4. Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam 4 // Mótmerki: Fangamark IB: (á víð og dreif á blöðum 51-68).

Antal blade
ii + 70 blöð + i (288 mm x 190 mm).
Layout

Tvídálka.

Leturflötur er um 246-260 mm x 123-130 mm.

Línufjöldi er 31-39.

Skrifttype
Ein hönd (að mestu); Skrifari:

Jón Þorláksson

Árni Magnússon

Páll Pálsson

Indbinding

Historie og herkomst

Herkomst

Ísland, í lok 17. aldar.

Erhvervelse
Lbs 451-477 fol. voru dánargjöf dr. Hannesar Þorsteinssonar til Háskóla Íslands, keypt þaðan af Alþingi til Landsbókasafns og afhent haustið 1938.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 3-4.

Halldóra Kristinsdóttir frumskráði 29. juni 2015.

Bevaringshistorie

Bibliografi

Titel: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Redaktør: Páll Eggert Ólason
Omfang: I-III
[Metadata]
×

[Metadata]