„Alexanders kvæði“
„Þar skal fram af þrætu kór / þundar renna blandi …“
„… af hjartans grunni hér og um aldir alda. Endir.“
64 erindi. Blöðin eru bundin í pappír og er fyrirsögn framan á kápu: Nokkur smákvæði.
„Ljóðabréf tilsent herra Vigfúsi Thórarenssyni “
„Kóngs af hátign kjörinn sýslumaður …“
„… Yggs á kvon með eigin hendi.“
„Frá Páli Jónssyni.“
65 erindi. Undir stendur: Davíð Jónsson á bókina og er vel að kominn. Jón Jónsson á Mjóadal .
„Eitt kvæði kallast Hrafna hrekkur kveðinn af sál. Guðbrandi Einarssyni“
„Nú skal seggjum segja / söguþátt með skýrri grein …“
„… en brandur á land upp stekkur. Endir þessa kvæðis.“
„Æpa kalla og eggja klið …“
„… Ísrael allan sigur núna.“
„Fyrir bón fríða þín / fallega stúlkan mín …“
„… full sælu með.“
Þrjú erindi.
„… trúaðra manna endir.“
Upphaf máð.
Undirritað Jón Jónsson.
„Margt er manna bölið / misjafnt drukkið ölið …“
Aðeins hluti af fyrsta erindi.
„Ljóðabréf af Illuga Einarssyni“
„Elsku bróðir laga ljóð …“
„… hvar blífandi var hæsta tré.“
„Að lesa og skrifa list er góð …“
Stafir eru skrifaðir bæði á undan og á eftir vísunni.
„… þó félli …“
„… um illa og ljóta flórgrýluna. Endirinn.“
Upphafið vantar.
„Mývetningar mesta afrek sýndu …“
„… mín láti ágætu hljóðin fín. Endir.“
„Send ég mætum sónar vín / syni Þórðar Jóni.“
49 erindi. Kvæðið er sent Þórði Jónssyni. Skáldið virðist kalla sig Lauga.
„Ein var mér saga sögð / sem skrýtin þykja vann …“
„vaskari ei finnast má.“
„Skraparotsprédikun“
„Heill og hamingja, gunst og góðvilji …“
„… þú hinn leiðasti og lúsugasti Skrapari. Endirinn.“
Blanda VII:59-72
Gamanræða sem flutt var á herranótt í Skálholti á 18. öld. Vísur aftan við sem tilheyra leiknum.
„Eitt vers. Lagið er: Um dauðann gæt þú, drottinn“
„Dýrmæt umþenking dauðans er …“
„Um dauðann gæt þú, drottinn“
„… dýrmætan dauðans blundinn.“
Eitt erindi.
„Illugi gisti Einars bur / yndis vist á hæðum …“
„… himnesk friðarkjörin blíð.“
Ort eftir Illuga Einarsson kvæðasmið.
„Eftirmæli eftir sál. J. J.son“
„Skarð fyrir skildi nú / skeð hefur allmikið …“
„… í allskyns neyð og andstreymi.“
Ort eftir Jón Jónsson frá Mýri. Átta erindi.
„Skarð er nú fyrir skildi orðið / sker það brjóstið harmi sverum …“
„… svo höndlum dýrðar hnossið.“
Sex erindi. Ort eftir Jón Jónsson frá Mýri.
„Einn sálmur eður eftirmæli eftir sál. A. J.s. undir nafni hans eftirþreyjandi ekkju. Með lag: Faðir vor, sem á himnum ert.“
„Kóngur einasti kristninnar / konungur allrar veraldar …“
„… Amen lofgjörðarsöngur klár.“
Úr upphafsstöfum erinda má lesa nafnið Kristín Sigurðardóttir, sem er nafn ekkjunnar.
„Sálmur á reynslutímanum með lag: Mitt hjarta, hvar til hryggist þú“
„Herra Guð faðir himnum á / hjálpin gjörvöll sem kemur frá …“
„Mitt hjarta, hvar til hryggist þú“
„… með sætri lofgjörð ævarandi. Amen.“
Tíu erindi.
„Sálmur um sanna iðran. Tón: Konung Davíð sem kenndi“
„Miskunnarherrann mildi / maktin hvers aldrei dvín …“
„… til eilífs inn mig leið.“
Fjögur erindi.
„Exordium“
„Margar eru líðanir þær …“
„… tekur við hinum sæla anda.“
Undir stendur: Davíð Jónsson á Mjóadal á blöðin með réttu og er vel.
„Hjartans kvak til herrans Jesúm þess langþjáða manns Jóns Halldórssonar undir hans nafni. Tón: Mildi Jesú, ég minnist nú“
„Jesú mín bótin beinasta / blessaður nauðhjálpari …“
„Mildi Jesú, ég minnist nú“
„… eftir minn banablundinn. Amen.“
Fjórtán erindi. Upphafsstafir erinda: Jón Halldórsson.
„Lítil ljóðmæli eftir barnið Jórunni Benidiktsdóttur á Stóruvöllum. Tón: Um dauðann gef þú drottinn“
„Margt er sem lýði amar að / einatt í veröldinni …“
„Um dauðann gef þú, drottinn, mér“
„… fyrir þar fögnuð skeðan. Amen.“
Átján erindi.
„Fóstrunnar söknuður sár. Tón: Kær Jesú“
„Mun það í minni mína lífs um tíð …“
„… meður þér mínum Jesú hjá. Amen.“
Þrjú erindi.
„Sálmvers. Tón: Nú bið ég, Guð, þú náð[ir mig]“
„Ó, minn Jesú, í undum þín / öll er sáluhjálp fólgin mín …“
„Nú bið ég, Guð, þú náðir mig“
„… gjörvöll er skuldin betöluð.“
Fjögur erindi.
„Dagleg ósk“
„Guð, minn faðir, gefi mér / gæfu kjör sem haga mér …“
„… Herrann Jesú hjálpi mér / heilagur andi stjórni mér.“
Eitt erindi.
„Viðvörunarsálmur. Lag: Upphef ég augun mín“
„Lít hér sem leið um átt / lífs hvar ég enti skeið …“
„Upphef ég augun mín“
„… mín girnd þá uppfyllist. Amen.“
Þrettán erindi.
„Einn andaktugur sálmur. Tón: Dagur er, dýrka ber“
„Lambsins blóð, lambsins blóð, lausnargjald dýrt …“
„… blóðið þitt, blæði á mitt, blóðdreift hjarta. AMEN.“
Sextán erindi.
„Biðils ríma byrjar hér“
„Góma kvörn að gamni mínu / galar mætu fljóði í vil …“
„… óðar tárast smiðurinn. Endir.“
101 erindi.
„Eitt kvæði af hjónum og einum stúdent“
„Það var eitt sinn þrifið sprund / þorna átti sjúkan lund …“
„Fyrir þann berska fráleitt er / framan í klóka Manga / skynsemin sér skikkar margt til fanga“
86 erindi.
„Sagan af Marsilíus og Rósamundu“
„Það er upphaf á þessari sögu að í Frakklandi bjó einn burgeiss …“
„… og endum vér þennan söguþátt. Hafi þeir allir þökk fyrir sem hlýddu á þetta.“
„Anno 1845 d. 27. april.“
„Eitt ljóðabréf“
„Blómguð prýði trygg og trú / títt með blíðu sinni …“
„… alla stund í faðmi hans.“
48 erindi. Ártalið 1817 er bundið í 46. erindi og nafnið Margrét í 47. erindi.
„Hlýrahljómur“
„Fram skal kippa berlings bát / fyrst biðja sprundin hæfilát …“
„… kallist Hlýrahljómur.“
56 erindi.
„Næturþanki kveðinn af sál. síra Jóni Jónssyni M:f:“
„Viltu þekkja vinur minn / verkin drottins stóru …“
„… það verður senn hvað líður. Endir.“
69 erindi.
Davíð Jónsson á blöðin með réttu og er vel að ko (bl. 132v).
„Sárt er meyjar að missa“
„Björt mey og hrein / mér unni ein …“
„… fagurleit hringa þilja.“
Fjögur erindi. Á eftir fer stafrófið í einni línu.
„Eina ég veit og er mér sú í minni …“
„… altíð leist mér því á þá.“
„Aðra ég veit og er sú mér í minni …“
„… aldrei leist mér því á þá.“
„Tilhugalífið hinumegin“
„Þetta er mikið dinglum dart …“
„… ef skyndibrullaup verður á.“
„Þrífættur piltur þrifinn og vandstilltur …“
„… segðu hver sá er.“
Svarið er Rokkur.
„Um sauð sem hvarf“
„Ef hann hefur í undaskúr / orðið fyrir gríðarbyl …“
„og loksins hljóp út Kríkaskarð.“
„Þjófabragur“
„Þórður og Björn þeir þreyttu stríð / það var austur í Fljótsins hlíð …“
„… að einhver stóð og hlýddi á í leyni.“
Níu erindi.
„Páll og reka“
„Sá ég við dyrnar systkin þörf / er seint um matinn breka …“
„… en hann fægist á steini.“
Undir stendur nafnið Davíð Jónsson.
„Ferjubragur Odds Þorvarðssonar“
„Bragurinn rís um bátinn einn / er brögnum þótti auðnuseinn …“
„… kljást og felli ég brag.“
23 erindi.
„Hingað kom með kálfa tvo / kænt að velja um staði …“
„… Hallur á Breiðavaði.“
Fjögur erindi.
„Vísur að vefa í band“
„Þessi iðja áfram rann / endi er kominn á linda …“
„… bæði á sjó og landi.“
Tvö erindi.
„Staka“
„Vandfarið er með vænan grip …“
„… og samviskuna í manni.“
Eitt erindi.
„Hestur“
„Bylur skeiðar virkta vel …“
„… mylur grjót en syndir hel.“
Eitt erindi.
„Hafið þið heyrt ég hermi frá / hugurinn mér það kenndi / að Mýrarsólin björt á brá / til Bjarnarstaða vendi.“
„… gefi ykkur öllum.“
Nokkur erindi.
„Vinaspegill“
„Forðum tíð einn brjótur brands …“
„… vil ég láta vísnaskrá / vinaspegil kalla. ENDIR.“
112 erindi.
„Eitt ljóðabréf“
„Bendir randa Benjamín / bróðir kær sæll vertu …“
„… milding tjalda fagra kvels.“
66 erindi.
Undir stendur: Davíð Jónsson á blöðin.
„Hlýrahljómur“
„Fram skal klippa berlings bát …“
„… Mín þó víst sé mærðin klén.“
Aðeins skrifuð fyrstu tvö erindin og fyrsta ljóðlína hins þriðja.
„Heimildarskrá“
„Fyrst að blaðið autt var eitt / og eftir stutt af vöku …“
„… bragurinn vil ég þegi.“
23 erindi.
„Munaðardæla eður bóndalíf og landselska o.s.frv.“
„Vænt er að kunna vel að búa …“
„… snæri því líkar margar til.“
33 erindi.
„Ennú fékk ég óska hlut / undir herrans nafni …“
„… hvað sem af mér verður.“
Átta erindi.
„Nýársvísur“
„Núna gef mér nýja stund / náðin Guðs að líta …“
„… þreyð í Snáka sundi.“
Tvö erindi.
„Um góu“
„Hrönnum góa grönnum snjóa færir …“
„… mönnum flóa vill hún þá.“
Eitt erindi.
„Á nýársdag“
„Þú hefur illa þínum lokað dyrum …“
„… nýárs þennan átta dag.“
Þrjú erindi.
„Kaldeggin eft[ir] JÞS“
„Frosið er við fræða damm …“
„… hjarta glaður blessa.“
Þrettán erindi.
„Lagst er fyrir í lamasess og látinn dugur …“
„… ekki fetið þenkt né skrifað.“
Þrjú erindi.
„Höfuð er veikt en hjartað smeykt / holdið sleikt af beinum …“
„… gigtar steikt af meinum.“
Eitt erindi.
„Kvennabúnaður“
„Faldinn svanns og hattinn hraf[n]s …“
„… æ var gaman að horfa.“
Tvö erindi.
„Um dauða mús í kirkju“
„Ei er forvitnin öllum hent / ávalt hún skaðar drótt …“
„… birtunnar þarf ei lið.“
Þrjú erindi.
„Veturinn úr smámunum. S. Breiðfjörð“
„Oss að rísa fletum frá …“
„… dýrð auðugur vetur.“
Tíu erindi.
„Hausttíð“
„Höfuðin landa hausti á …“
„… hærur gráar sínar.“
Sjö erindi.
„Lauf í vindi lífs er bið / og lítið yndis sæti …“
„… og ferðamæði kasta.“
Þrjú erindi.
„Bjargið góða“
„Þegar ég margar þrautir sé / þá í huga kemur …“
„… þá eins og bjargið góða.“
Fimm erindi.
„Me[ð] erfiði þig áttu jörðu af að næra …“
„… þar um tjáir ekki að kæra.“
Eitt erindi.
„Sagan af Nitida frægu“
„Nitida hét meykóngur er réð fyrir Frakklandi …“
„… og stýrði hann Frakklandi með heiðri og sóma eftir föður sinn.“
„Endum svo sögu þessa þann 26. januari 1851.“
Sautján kaflar.
„Skipafregn“
„Vorið langt verður oft dónunum …“
„… vínið keldur verður.“
Niðurlag glatað.
„… stendur sem ég nú gjörla finn …“
„… af þeim les ekki meira.“
Upphaf glatað.
„Sæll blessaður sómagjarni bróðir …“
„… hjartamild og dygðaríkur svanni …“
Niðurlag glatað.
„Annað ljóðabréf eftir þ. sam“
„Sælir ætíð séuð þér með sæmd og heiðri …“
„… í lífi og dauða.“
Ort 1816.
„Einn bragur af Högna og A“
„Högni og Andri hittust undir háum lundi …“
„… hnykkti svíra hann …“
Niðurlag glatað.
„Hafnar ljóma foldin fín …“
„… gleymist bragur þagnar Jón.“
Upphöf vísna ort af einhverjum Jóni.
„Ofan úr hnjúki oft ég hef / undan þéttum kára …“
„… raulaðu spjallið veiga þöll.“
„Bæn á nýársdag“
„Ó, þú óendanlega góði og miskunnsami Guð …“
„… meðverkandi náð heilags anda amen.“
„Á jólanótt“
„Áfangastaður dauða míns …“
„… sunginn upphæðum í.“
„Á jóladaginn“
„Fagni nú himnar, fagni jörð …“
„… fagnaðar með lofgjörð.“
„Á nýári“
„Allir dagar sitt eiga kvöld …“
„… blessist vor sál og líf.“
„Þrjú nýársvers“
„Nýárssólin nýupprunna …“
„… í oss veri burt deyjandi.“
„Bæn eftir prédikun á sunnudögum“
„Miskunnsami Guð, vor himneski faðir …“
„Vikuvers ort af sál. Sigfúsi Jónssyni í Höfða“
„Sól réttlætis himin hjarta / hýr upp ljóma vermandi …“
„… vef mig, Jesús, þinni hendi.“
„Verkun vorvindanna á sumarveðráttuna“
„Sá nafnfrægi enski veðráttufarsspámaður Kirvan …“
„… og ef til vill líka hér á Íslandi.“
Sturlaðar sögur 2009p. 116.
„Ár May 13, 1833 að Melum í Fnjóskadal var bú hjónanna þar Endriða Arasonar og Helgu Þorsteinsdóttur tekið undir uppskrift og skipti, sem grundast á beiðni þeirra sökum skilnaðar á þessu vori, þá Helga víkur síðan burt með dóttur sinni Margrétu giftri og hennar einasta lífserfingja. Útskiptist Endriða eftirfylgjandi fémunir.“
Skrá um þá fémuni.
Pappír.
Handritið hefur nýlega verið blaðmerkt með blýanti.
Eindálka.
Blekklessa neðst á bl. 30-31 og hylur hluta textans.
Bl. 31r er máð og illlæsilegt.
Með ýmsum höndum.
Gömul snjáð og tætt leðurkápa liggur með handritinu.
Handskrifaður seðill sem bundinn er með vélritaðri handritaskrá SÁM-handrita og greinir frá því að safninu sé afhent handritið að ósk Hallfríðar Aðalgeirsdóttur á Stórulaugum. Undir skrifar Páll H. Jónsson, Laugum.
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1851.
Handritið barst Handritastofnun Íslands 22. september 1969. Það er gjöf úr dánarbúi Aðalgeirs Davíðssonar Stórulaugum, Suður-Þingeyjarsýslu.
ÞS skráði 29. júlí - 25. september 2008 og May 10, 2010 (sjá einnig óprentaða skrá á Árnastofnun).
Handritinu hefur verið komið fyrir í 17 blöðum sem brotin eru um hvern hluta. Hefur það verið gert eftir að handritið barst Handritastofnun Íslands í september 1969.
Jón Samsonarson raðaði blöðunum upp en þau voru í ruglingi þegar handritið barst stofnuninni.