„Rímur af Vilmundi Viðutan og Hjaranda fóstbræðrum kveðnar árið MDCCCXV“
„Hallar fornu tvíblinds til …“
„… flestum brast með togum.“
10 rímur.
Titilsíða á bl. 1r.
„Kvæðið Einvaldsóður um þær fjórar Einvaldsstjórnir í 6 bálka samantekinn Anno 1658“
„Ljós fer að leggja …“
„… einnin hinum er orð mín þuldu.“
Níu kver:
Óþekktur skrifari.
Pennaflúraðir stafir á titilsíðu (1r).
Pennaflúraðir upphafsstafir á stöku stað.
Band frá 1851-1900, e.t.v. samtímaband (175 mm x 104 mm x 18 mm). Tréspjöld og kjölur klædd skinni, blindþrykktu. Kjölur lítillega upphleyptur á uppistöðum. Spjaldbl. og saurbl. eru blöð úr Annaler for nordisk oldkyndighed og historie , sem kom út í Kaupmannahöfn 1851.
Fastur seðill á fremra spjaldbl., frá Jóni Samsonarsyni, með upplýsingum um feril.
Handritið var skrifað á Íslandi ca 1850-1900, en skriftin á því bendir til seinni helmings 19. aldar.
Á bl. 70v er nafn Guðnýjar Björnsdóttur (1829-1916), húsfreyju á Þverá í Reykjahverfi, sem bendir til að hún hafi verið eigandi handritsins. Ekki er vitað hvernig það barst til Valdimars Hólm kaupmanns á Húsavík, en þaðan barst það Handritastofnun Íslands.
Handritastofnun Íslands fékk handritið að gjöf frá Valdimar Hólm kaupmanni á Húsavík 11. ágúst 1969.