Manuscript Detail

SÁM 11

Rímur af Vilmundi viðutan ; Iceland, 1850-1899

Language of Text
Icelandic

Contents

1 (1r-50r)
Rímur af Vilmundi viðutan
Rubric

Rímur af Vilmundi Viðutan og Hjaranda fóstbræðrum kveðnar árið MDCCCXV

Incipit

Hallar fornu tvíblinds til …

Explicit

… flestum brast með togum.

Note

10 rímur.

Titilsíða á bl. 1r.

2 (51r-70r)
Einvaldsóður
Rubric

Kvæðið Einvaldsóður um þær fjórar Einvaldsstjórnir í 6 bálka samantekinn Anno 1658

Incipit

Ljós fer að leggja …

Explicit

… einnin hinum er orð mín þuldu.

Text Class

Physical Description

Support
Pappír.
No. of leaves
i + 70 + i blöð í oktavó (168 mm x 103 mm). Bl. 1v að mestu autt. Bl. 50v autt.
Collation

Níu kver:

  • Kver I: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver II: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver III: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver IV: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver V: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver VI: 10 blöð, 5 tvinn.
  • Kver VII: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver VIII: 8 blöð, 4 tvinn.
  • Kver IX: 4 blöð, 2 tvinn.

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 135-142 mm x 78-82 mm.
  • Línufjöldi er 21-29.
  • Víðast griporð, þó ekki alltaf í stöðu griporðs, heldur neðstu línu.

Condition

  • Gömul viðgerð við bl. 17 og 24 og 41 og 50.
  • Bl. 3-6 rifin neðst.
  • Rakablettir eru víða ofarlega á blöðum handritsins.

Script

Óþekktur skrifari.

Decoration

Pennaflúraðir stafir á titilsíðu (1r).

Pennaflúraðir upphafsstafir á stöku stað.

Additions

  • Leiðréttingar með hendi skrifara á spássíum bl. 17v og 56r.
  • Nafnið Guðný Björnsdóttir á bl. 70v.
  • Bæjarnafnið Þverá í Reykjahverfi kemur fyrir á fremra og aftara saurbl.

Binding

Band frá 1851-1900, e.t.v. samtímaband (175 mm x 104 mm x 18 mm). Tréspjöld og kjölur klædd skinni, blindþrykktu. Kjölur lítillega upphleyptur á uppistöðum. Spjaldbl. og saurbl. eru blöð úr Annaler for nordisk oldkyndighed og historie , sem kom út í Kaupmannahöfn 1851.

Accompanying Material

Fastur seðill á fremra spjaldbl., frá Jóni Samsonarsyni, með upplýsingum um feril.

History

Origin

Handritið var skrifað á Íslandi ca 1850-1900, en skriftin á því bendir til seinni helmings 19. aldar.

Provenance

Á bl. 70v er nafn Guðnýjar Björnsdóttur (1829-1916), húsfreyju á Þverá í Reykjahverfi, sem bendir til að hún hafi verið eigandi handritsins. Ekki er vitað hvernig það barst til Valdimars Hólm kaupmanns á Húsavík, en þaðan barst það Handritastofnun Íslands.

Acquisition

Handritastofnun Íslands fékk handritið að gjöf frá Valdimar Hólm kaupmanni á Húsavík 11. ágúst 1969.

Additional

Record History

GI skráði September 22, 2003, sjá einnig óprentaða bráðabirgðaskrá Árnastofnunar.

ÞS jók við og lagfærði samkvæmt reglum TEIP5 May 14, 2010 og July 14, 2017.

Metadata
×

Metadata