Skráningarfærsla handrits

KBAdd 4 V fol.

Computus ecclesiasticus novus, 1700-1758

Tungumál textans
íslenska (aðal); latína

Innihald

(1r-8v (bl. 22r-29v))
Computus ecclesiasticus novus
Athugasemd

Tímatal til að reikna út helgidaga og kirkjuhátíðir katólsku kirkjunnar ásamt útskýringum.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 8 + i blöð (204-210 mm x 161-166 mm). Auð blöð: 21v og 28v-29r.
Tölusetning blaða
Blaðmerkt með blýanti á neðri spássíu, 21-29. Samfella er í blaðmerkingu KBAdd 4 I-V 4to.
Kveraskipan

Eitt kver:

  • Bl. 21-29, 4 tvinn.

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 135-188 mm x 115-135 mm.
  • Línufjöldi er 21-36.
Ástand
  • Blöð eru illa farin, sérstaklega bl. 22r.
  • Blöð hafa dökknað.
  • Ytri jaðar er illa farin.
  • Brotið, þar sem blaðið hefur verið brotið saman, er dökkt (bl. 22r) og brotnað hefur úr jaðrinum.
  • Yfirstrikanir.
Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Ólafssonar fljótaskrift og kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Töflur til að reikna út helgidaga og kirkjuhátíðir katólsku kirkjunnar, bl. 27v-28r og 29v.

Band

Band frá 1994 (222 mm x 190 mm x 16 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi. Límmiði með safnmarki á kili. Stimpill frá Konungsbókhlöðunni í Kaupmannahöfn á bl. 22r.

Bundið saman með KBAdd I fol., KBAdd II fol., KBAdd III fol. og KBAdd IV fol.

Jafnframt fylgir kápa (335 mm x 250 mm) með seðli og umslagi. Límmiði fremst á kápu með safnmarki.

Fylgigögn

Með handritum KBAdd 4 I-V fol. eru eftirfarandi fylgigögn, í sér kápu:

  • Samanbrotið blað (333 mm x 213 mm), á því stendur: Lægges i en konvolut.
  • Umslag (237 mm x 346 mm), á því er límmiði með safnmarki og stimpill Konunglega bókasafnsins.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn. Kålund tímasetur það til fyrri hluta 18. aldar, (Katalog 1900, bls. 426-427).

Ferill

Talið að handritið hafi tilheyrt Jacob Langebek.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Viðgerðarsaga

Anja Scocozza (forvarsla), Christine Bronér (saumur) og Mette Jakobsen (band) gerðu við handritið í ágúst 1994 til desember 1994. Handritið er í nýju bandi og gamalt umslag fylgdi í sérstakri kápu, en það er ekki í öskju. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með ásamt kveraskiptingu.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn, viðaukar
  • Safnmark
  • KBAdd 4 V fol.
  • Efnisorð
  • Tímatöl
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn