Skráningarfærsla handrits

KBAdd 4 III fol.

Getgátur um skriftina á hinu nýfunda Gull-horni, 1700-1758

Tungumál textans
danska

Innihald

(1r-2r (bl. 17r-18r))
Getgátur um skriftina á hinu nýfunda Gull-horni
Titill í handriti

Conjectura over Skriften paa det nyfundene Guld-Horn

Upphaf

I sanhed synes mig dette ikke at være RundeBogstaver ...

Niðurlag

... ind til hand faare ere andre bader splysning(?).

Athugasemd

Í fyrirsögn koma fyrir stafir sem virðast vera rúnaletur.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 2 blöð (316 mm x 203 mm). Bl. 18v er autt.
Tölusetning blaða
Blaðmerkt með blýanti á neðri spássíu, 17-18. Samfella er í blaðmerkingu KBAdd 4 I-V 4to.
Kveraskipan

Eitt kver:

  • Bl. 17-18, tvinn.

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 273 mm x 165-170 mm.
  • Línufjöldi er 31-41.
  • Griporð.
Ástand
  • Blöð hafa dökknað.
  • Blekblettir.
  • Jaðar skemmdur (viðgerð).
Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Ólafssonar fljótaskrift og kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Letur er minnir á rúnaletur (bl. 17r).

Ígildi bókahnúts, bl. 18r.

Band

Band frá 1994 (222 mm x 190 mm x 16 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi. Límmiði með safnmarki á kili. Stimpill frá Konungsbókhlöðunni í Kaupmannahöfn á bl. 17r.

Bundið saman með KBAdd I fol., KBAdd II fol., KBAdd IV fol. og KBAdd V fol.

Jafnframt fylgir kápa (335 mm x 250 mm) með seðli og umslagi. Límmiði fremst á kápu með safnmarki.

Fylgigögn

Með handritum KBAdd 4 I-V fol. eru eftirfarandi fylgigögn, í sér kápu:

  • Samanbrotið blað (333 mm x 213 mm), á því stendur: Lægges i en konvolut.
  • Umslag (237 mm x 346 mm), á því er límmiði með safnmarki og stimpill Konunglega bókasafnsins.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn. Kålund tímasetur það til fyrri hluta 18. aldar, (Katalog 1900, bls. 426-427).

Ferill

Talið að handritið hafi tilheyrt Jacob Langebek.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. apríl 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Viðgerðarsaga

Anja Scocozza (forvarsla), Christine Bronér (saumur) og Mette Jakobsen (band) gerðu við handritið í ágúst 1994 til desember 1994. Handritið er í nýju bandi og gamalt umslag fylgdi í sérstakri kápu, en það er ekki í öskju. Nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð fylgdi með ásamt kveraskiptingu.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á NorS Sprogsamlinger frá 1994.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn, viðaukar
  • Safnmark
  • KBAdd 4 III fol.
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn