Blaðmerkt er með fjólubláum lit (á miðri neðri spássíu) 1-16.
Tvö kver.
Með einni hendi, óþekktur skrifari. Blendingsskrift.
Fyrsti upphafsstafur er blekdreginn skrautstafur, 3 línur.
Fyrirsagnir oft dregnar aðeins hærri en meginmál.
Band (172 mm x 120 mm x 10 mm) er frá 1965-1968.
Kver eru saumuð á móttök; utan um kverin er kápa úr sýrufríum pappa. Á fremri kápu stendur: „AM 116, 8vo, V“ skrifað með dökku bleki.
Handritið er í brúnni strigaklæddri öskju ásamt AM AM 116 I 8vo, AM 116 II 8vo, AM 116 III 8vo og AM 116 IV 8vo.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 400.
Að því er fram kemur í Katalog II, bls. 400 og á seðli Árna Magnússonar þá er sagan af Vestfjörðum. Handritið var samkvæmt sömu heimildum að öllum líkindum í eigu sr. Tómasar á Snæfjöllum.
Í 1730 voru blöðin hluti af No. 116 in 8vo (sbr. AM 456 fol., 37v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. maí 1975.