Valdimars saga, Konráðs saga keisarasonar og Þjalar-Jóns saga
„Sagann af Valldemar (Fracka, en strikað yfir) konungs ſyne“
„Nu byriaſt saga Af þialar Iöne og Eyrike For|vitna“
„Anno 1694“
Blaðmerking með blýanti 1-40, síðari tíma viðbót.
Eldri blaðsíðumerking 161-240 sem er áframhaldandi frá AM 585 d 4to.
Fimm kver:
Með hendi Jóns Þórðarsonar, fljótaskrift (sbr. Stegmann 2018, bls. 170; sjá einnig Agnete Loth 1978, bls. 40).
Upphafsstafir eru blekdregnir skrautstafir (ca. 2-6 línur).
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Spássíugreinar með hendi skrifara.
Band frá árunum 1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu, leifar af límmiða á kili.
Handritið var skrifað á Íslandi og af Jóni Þórðarsyni árið 1694, skv. skrifaraklausu (sjá einnig Katalog I, bls. 747).
Það var áður hluti af stærri bók (sbr. t.d. AM 585 a 4to). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 536 4to, AM 345 4to, AM 585 a 4to, AM 585 b 4to, AM 585 c 4to og AM 585 d 4to (sjá Stegmann 2018, bls. 165-171).
Jón Jónsson erfði stóra handritið, sem blöðin tilheyrðu, eftir föður sinn og skrifara Jón Þórðarson.
Árið 1710, gaf Markús Bergsson Árna Magnússyni stóra handritið, sem síðan endurraðaði því (Stegmann 2018, bls. 171-178). Það er ekki vitað hvernig handritið kom til Markúsar, en í athugasemdum sínum, nefnir Árni að Sigmundur Sæmundsson er sagður hafa verið fyrri eigandi. (Sjá AM 435 a 4to, bl. 82r).
Árið 1730 voru blöðin hluti af No 585 in 4to (sbr. AM 456 fol., bl. 23v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. nóvember 1982.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.