„Hér byrjast sagan af Finnboga hinum ramma“
„Ásbjörn hét maður og var kallaður dettiás …“
„… bræður hans aðrir voru mjög í förum þar til að þeir staðfestu ráð sitt og þóttu allir mikilsháttar menn.“
Endir Finnboga sögu.
Blaðmerking með svörtu bleki á fimmta hverju blaði.
Blaðmerking með rauðu bleki 1-34.
3 kver.
Skrifað af Þórði Þórðarsyni; ung hönd (sbr. seðill), fljótaskrift.
Pappaband frá 1772-1780.
Seðill (164 mm x 106 mm) innan á fremra spjaldi með hendi skrifara Árna Magnússonar: „Úr bók er ég fékk af séra Guðmundi á Helgafelli, er með hendi Þórðar Þórðarsonar þá hann var ungur. [Nokkru neðar á seðlinum ritar Árni heiti sögunnar sem handritið geymir] Finnboga ramma saga.“
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 112.
Það var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 163 f fol., AM 163 g fol., AM 163 s fol. og líklega AM 164 e fol.
Bókina sem handritið var tekið úr fékk Árni Magnússon frá sr. Guðmundi á Helgafelli (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar í desember 1885, Katalog I; bls. 112 (nr. 195), DKÞ grunnskráði 1. október 2001, VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum, 5. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010 ÞÓS skráði 22. júní 2020.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.