„Schedæ Ara prests fróða“
„Íslendingabók gjörða eg fyrst biskupum vorum …“
„… að öllum Norvegi.“
Fyrir neðan formálann og á undan meginmálinu er yfirlit yfir efni bókarinnar.
„Incipit libellus Islandorum.“
„Ísland byggðist fyrst úr Norvegi á dögum Haralds hins hárfagra Halfdanarsonar …“
„… Hér lýkst sjá bók.“
„Þetta er kyn biskupa Íslendinga og ættartala“
„[K]etilbjörn landnámsmaður …“
„… Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Jóhanni.“
„Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga“
„Ingvi Tyrkjakonungur …“
„… föður Brands og Þorgils föður míns en eg heitir(!) Ari.“
Blaðmerkt er með dökku bleki, 1, 5, 10, 13, síðari tíma viðbót.
Blaðmerkt er með rauðu bleki, 1-13, síðari tíma viðbót.
Með hendi sr. Einars Einarssonar; kansellískrift.
Bl. 13v óþekktur skrifari, blendingsskrift.
Flestir upphafsstafir skrifaðir af skrifara. Þeir eru aðeins hærri en textinn í kring (1-2 línur) og stundum aðeins skreyttir með smá flúri.
Fyrirsagnir skrifaðir með hærri stöfum en meginmál.
Pappaband (192 mm x 157 mm x 4 mm) frá 1772-1780. Safnmark og titill eru á fremra kápuspjaldi rekto; blár safnmarksmiði á kili.
Handritið er í öskju með AM 113 b-k fol.
Handritið er skrifað á Íslandi (sbr. seðil) og runnið frá AM 113 b fol. (A-gerð). Það er tímasett til ca 1675 í Katalog I, bls. 77, en þá var sr. Einar Einarsson dómkirkjuprestur í Skálholti
Árni Magnússon fékk handritið frá sr. Halldóri Torfasyni í Gaulverjabæ, fyrst til láns en segir það vera sitt 1706 (sbr. seðil).
Árið 1730 var það hluti af No. 113 in fol. (sbr. AM 456 fol., 3v og AM 477 fol., 5v).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. apríl 1974.
Viðgert af Birgitte Dall í nóvember 1971.
Bundið af Matthiasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780.