Einungis niðurlag.
„Vísa Björns Jónssonar um Miðfjarðar-Skeggja“
„Skeggi sköfung höggur …“
„Vísa Þórðar M.S. um Þórð hreðu“
„Furðu margir forðum …“
„Sagan af Þórði hreðu“
„Þórður hét maður son Hörða-Kára …“
„… Þórður hreða varð sóttdauður“
höfum vér með sannleik ekki heyrt fleira af honum sagt, og lyktum vér svo þessa hans sögu.
„Vísa Þórðar af Finnboga ramma.“
„Fimur var Finnbogi rammi …“
Krassað er yfir vísuna sem er 8 vísuorð.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bleki, 1-17.
Fjögur kver.
Með hendi Jóns Gissurarsonar, léttiskrift.
Spássíugreinar víða með hendi skrifara.
Band frá maí 1975 (304 mm x 213 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi. Handritið liggur í öskju ásamt gömlu bandi.
Gamalt pappaband úr handgerðum pappír frá 1772-1780 fylgir. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá séra Högna Ámundasyni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. janúar 1976.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn af Birgitte Dall í maí 1975.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780. Það band fylgir í öskju.