„Bandamanna saga“
„Ófeigur hét maður, hann bjó í Miðfirði norður á Reykjum …“
„… Snorri Kálfsson og þeir Miðfirðingar og lýkur hér sögunni.“
„Hér hefur Flóamanna sögu“
„Haraldur konungur Gullskeggur réð fyrir Sogni …“
„… föður Gissurar galla, föður Hákonar, föður Jóns.“
Sjö kver.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellískrift.
Leiðrétting á spássíu bl. 31r með hendi skrifara.
Band frá 1910-1920 (324 mm x 207 mm x 17 mm). Pappaspjöld klædd brúnum marmarapappír, bókfell á kili. Blár safnmarksmiði á kili.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka).
Fastur seðill á saurblaði 2r (112 mm x 11 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Frá sál. assessor Thormod Torvesens enke 1720.“
Handritið var skrifað í Noregi (Stangarlandi) og er tímasett frá ársbyrjun 1690 til vors 1697 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ). Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 100, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var ca 1686-1707.
Var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 149 fol., AM 157 g fol., AM 157 a fol., AM 154 fol., AM 157 c fol., AM 157 e fol., AM 164 k fol., AM 150 fol., AM 770 a 4to og AM 157 d fol. (sbr. AM 435 b 4to, bl. 6v-7r).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XIV fol. í safni Þormóðs Torfasonar. Árni Magnússon fékk hana frá ekkju Þormóðs árið 1720 og tók í sundur (sbr. seðil og AM 435 b 4to, bl. 6v-7r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. mars 1974.
VH lagfærði í nóvember 2010. ÞS skráði 12. september - 24. nóvember 2008. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 17. september 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. nóvember 1885 (sjá Katalog I 1889:100 (nr. 169) .