Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 144 fol.

Sögubók ; Ísland, 1675-1700

Athugasemd
Handritið er skráð í þremur hlutum.
Tungumál textans
íslenska

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með fiskum og fangamarki SO // Ekkert mótmerki ( 3-5, 7, 11-12, 14, 16, 19-20, 39-41, 43, 45, 47 ).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Hjörtur á fótstalli ásamt blómum // Ekkert mótmerki ( 22, 24-25, 27, 29, 31, 33, 35, 49, 51 ).

Blaðfjöldi
i + 51 + i blað (320 mm x 201 mm).
Tölusetning blaða

  • Handritið er blaðsíðumerkt 1-102, e.t.v. upprunalega.
  • Síðari tíma blaðmerking 1-51 með rauðu bleki.

Kveraskipan

15 kver:

  • I: spjaldblað - fremra saurblað 1 (eitt tvinn + AM seðill, seðill límdur á saurblaði)
  • II: bl. 1-4 (2 tvinn: 1+4, 2+3)
  • III: bl. 5-8 (2 tvinn: 5+8, 6+7)
  • IV: bl. 9-12 (2 tvinn: 9+12, 10+11)
  • V: bl. 13-16 (2 tvinn: 13+16, 14+15)
  • VI: bl. 17-20 (2 tvinn: 17+20, 18+19)
  • VII: bl. 21-24 (2 tvinn: 21+24, 22+23)
  • VIII: bl. 25-28 (2 tvinn + eitt blað: 25+28, 26+27, 27bis á milli bl. 26 og 27)
  • IX: bl. 29-32 (2 tvinn: 29+32, 30+31)
  • X: bl. 33-36 (2 tvinn: 33+36, 34+35)
  • XI: bl. 37-40 (2 tvinn: 37+40, 38+39)
  • XII: bl. 41-44 (2 tvinn: 41+44, 42+45)
  • XIII: bl. 45-48 (2 tvinn: 45+48, 46+47)
  • XIV: bl. 49-51 (eitt blað + eitt tvinn: 49, 50+51)
  • XV: aftara saurblað 1 - spjaldblað (eitt tvinn)

Nótur

Nótur á bókfelli í gömlu bandi.

Band

Band frá 1910-1920 (320 mm x 280 mm x 17 mm). Pappaspjöld klædd pappír með brúnu marmaramynstri, bókfell á kili.

Spjöld í bandinu voru áður klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum og lituðum upphafsstöfum. Þau blöð voru fjarlægð af Kristian Kålund og marmarapappír settur í staðinn. Blöðin úr bókfellinu eru nú í AM Access. 7 (Hs 1) og AM Access. 7 (Hs 2).

Fylgigögn

  • Seðill á fremra saurblaði rektó (162 mm x 156 mm) með hendi Árna Magnússonar: Víga-Glúms saga. Svarfdæla saga. Hrafnkels saga Freysgoða, p.55. Gunnars saga Keldugnúpsfífls. Þáttur af Þorsteini forvitna. Þorsteins saga hvíta. Þáttur af Þorsteini Austfirðingi. Þáttur af Þorsteini (öðrum) austfirskum. Af Þorsteini stangarhögg. Gunnars saga Þiðrandabana. Úr bók í grænu bandi er ég fékk af séra Jóni Torfasyni á Breiðabólstað.
  • Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um viðgerðir.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, líklega á Suðurlandi, eftir AM 156 fol. og AM 161 fol. sem voru upphaflega saman í bók.

Tímasett til loka 17. aldar í Katalog I, bls. 102.

Var áður hluti af bók í grænu bandi (sbr. seðill). Í þeirri bók voru einnig a.m.k. AM 15 fol., AM 164 e fol. og AM 188 fol.

Ferill

Bókina sem handritið tilheyrði fékk Árni Magnússon frá séra Jóni Torfasyni á Breiðabólstað (sbr. seðill).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. nóvember 1993.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG fór yfir skráningu með gögnum frá BS, 2. maí 2024.
  • EM lagfærði kveraskipan 12. júní 2023.
  • ÞÓS skráði vatnsmerki 18. júní 2020.
  • ÞS skráði 12. september - 2. desember 2008.
  • DKÞ færði inn grunnupplýsingar 19. júní 2002.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 26. nóvember 1885 (sjá Katalog I 1889, bls. 102 (nr. 173).
Viðgerðarsaga
Viðgert í Kaupmannahöfn af Birgitte Dall í nóvember 1982.

Viðgert í Kaupmannahöfn af Birgitte Dall í febrúar 1974.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, keyptar af Arne Mann Nielsen í ágúst 1972.

Hluti I ~ AM 144 fol. (Hluti I)

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-11v)
Víga-Glúms saga
Titill í handriti

Sagan af Viga-Glúmi

Upphaf

Ingjaldur hét maður, son Helga hins magra …

Niðurlag

… allra argra manna hér á Íslandi

Baktitill

og lýkur hér saga Glúms.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Blaðfjöldi
11 blöð (320 mm x 201 mm).
Tölusetning blaða

  • Handritið er blaðsíðumerkt 1-22, e.t.v. upprunalega.
  • Síðari tíma blaðmerking 1-11 með rauðu bleki.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 265 mm x 150-160 mm.
  • Línufjöldi er ca 45-50.
  • Bendistafur á spássíum (V) til að merkja vísur í texta.
  • Síðutitlar með hendi skrifara.
  • Saga endar í totu (sjá 11v).
  • Griporð.

Ástand

  • Blettótt (t.d. neðarlega á bl. 7).
  • Blöð hafa verið skorin, skerðir texta á fyrstu ca 18 blöðum (sjá 2r-18v).

Skrifarar og skrift

Ein hönd að mestu. Óþekktur skrifari, kansellískrift.

Skreytingar

Pennaskreyttur upphafsstafur (ca 4 línur) á bl.: 1r.

Fyrirsagnir víðast með stærra letri og stafir stundum dálítið skreyttir.

Fyrsta lína með stærra letri og stafir dálítið skreyttir.

Griporð pennaflúruð.

Hluti II ~ AM 144 fol. (Hluti II)

Tungumál textans
íslenska
2 (12r-27)
Svarfdæla saga
Titill í handriti

Svarfdæla saga

Vensl

Afrit af AM 161 fol. bl. 1r-37v.

Upphaf

Það er upphaf að þessari sögu …

Niðurlag

… Ljótur lét drepa Eglu-Halla, bróður Karls unga.

Baktitill

Nú lýkur hér Svarfdæla sögu með slíku efni.

Athugasemd

Eyður á blöðum 15v-16r til að tákna eyður í texta. Blað 16v autt af sömu ástæðu.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Blaðfjöldi
16 blöð, þar með talið blað merkt 27bis (320 mm x 201 mm). Blað 16v autt.
Tölusetning blaða

  • Handritið er blaðsíðumerkt 23-52, e.t.v. upprunalega.
  • Síðari tíma blaðmerking 12-27 með rauðu bleki.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 265-280 mm x 150-160 mm.
  • Línufjöldi er ca 43-50.
  • Síðutitlar víða en sums staðar líklega verið skornir af þegar handritið var bundið (sjá t.d. 18v).
  • Bendistafur á spássíum (V) til að merkja vísur í texta.
  • Saga endar í totu (sjá 27r).
  • Griporð.

Ástand

  • Smá blettir.
  • Krassað yfir upprunalegt niðurlag á bl. 27r og afrit sama texta skrifað á seðil með yngri hendi (bl. 27bisr).
  • Bl. 27bisr hefur áður verið límt á bl. 27, en er nú fest við kjöl.
  • Blöð hafa verið skorin og skerða sums staðar texta.

Skrifarar og skrift

Ein hönd að mestu. Óþekktur skrifari, kansellískrift.

Skreytingar

Upphafsstafir lítið eitt skreyttir (sjá t.d. 18v).

Fyrirsagnir víðast með stærra letri og stafir stundum dálítið skreyttir.

Fyrsta lína með stærra letri og stafir dálítið skreyttir.

Griporð pennaflúruð.

Síðutitill á bl. 16v hefur rauða upphafsstafi.

Hluti III ~ AM 144 fol. (Hluti III)

Tungumál textans
íslenska
3 (27v-34r)
Hrafnkels saga Freysgoða
Titill í handriti

Hér byrjar sögu af Hrafnkeli Freysgoða

Vensl

Afrit af AM 156 fol., bl. 13r-28r.

Upphaf

Það var á dögum Haralds kóngs hins hárfagra …

Niðurlag

… og þóttu miklir menn fyrir sér.

Baktitill

Og lýkur hér frá Hrafnkeli að segja.

Athugasemd

Eyður á blaði 32v til að tákna eyður í texta.

4 (34v-40v)
Gunnars saga Keldugnúpsfífls
Titill í handriti

Saga af Gunnari Keldugnúpsfífli

Vensl

Afrit af AM 156 fol., bl. 36r-48v.

Upphaf

Þorgrímur hét maður og átti ii sonu …

Niðurlag

… þótti það allt vera miklir menn fyrir sér. Og lýkur þar þessari sögu.

5 (40v-41r)
Þorsteins þáttur forvitna
Titill í handriti

Söguþáttur af Þorsteini forvitna

Upphaf

Þorsteinn hét maður íslenskur er kom á fund Haralds kóngs Sigurðssonar …

Niðurlag

… með hinni mestu vináttu.

Baktitill

Og lýkur þar frá Þorsteini hinum forvitna.

6 (41r-44r)
Þorsteins saga hvíta
Titill í handriti

Saga af Þorsteini hvíta

Vensl

Afrit af AM 156 fol., bl. 1v-7v.

Upphaf

Maður hét Ölver hinn hvíti …

Niðurlag

… sem segir í Vopnfirðinga sögu.

Baktitill

Og lýkur hér saga Þorsteins hins hvíta.

7 (44v-45r)
Þorsteins þáttur Austfirðings
Titill í handriti

Saga af Þorsteini Austfirðing

Upphaf

Þorsteinn hét maður, austfirskur að ætt …

Niðurlag

… og þótti vera hinn mesti maður. Og lýkst þar frá honum að segja.

8 (45v)
Þorsteins þáttur sögufróða
Titill í handriti

Enn eitt ævintýri af öðrum íslenskum austfirskum Þorsteini

Upphaf

Í Austfjörðum vóx upp sá maður er Þorsteinn hét …

Niðurlag

… og var löngum með kóngi. Lyktar þar þetta ævintýr.

9 (46r-48r)
Þorsteins þáttur stangarhöggs
Titill í handriti

Af Þorsteini Stangarhögg

Vensl

Afrit af AM 156 fol., bl. 8r-12v.

Upphaf

Maður er nefndur Þorsteinn og bjó í Sunnudal …

Niðurlag

… og hafa margir höfðingjar frá þeim komið.

Baktitill

Lýkur þar að segja frá Þorsteini Stangarhögg.

10 (48r-51v)
Gunnars þáttur Þiðrandabana
Titill í handriti

Saga af Gunnari Þiðrandabana

Vensl

Afrit af AM 156 fol., bl. 29r-35v.

Upphaf

Ketill hét maður og var kallaður þrumur …

Niðurlag

… og var hann í Noregi til elliævi sinnar.

Baktitill

Og lýkur hér sögu Gunnars Þiðrandabana.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

Blaðfjöldi
25 blöð (320 mm x 201 mm).
Tölusetning blaða

  • Handritið er blaðsíðumerkt 53-102, e.t.v. upprunalega.
  • Síðari tíma blaðmerking 28-51 með rauðu bleki.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 255-265 mm x 150-160 mm.
  • Línufjöldi er ca 42-45.
  • Síðutitlar.
  • Bendistafur á spássíum (V) til að merkja vísur í texta.
  • Griporð.

Ástand

  • Gert hefur verið við gat á bl. 39 en snertir ekki textann.
  • Blettir á bl. 44.

Skrifarar og skrift

Ein hönd að mestu. Óþekktur skrifari, kansellískrift.

Skreytingar

Pennaskreyttir upphafsstafir á bl.: 35v, 39v, 41r, 45v, 46r, 51r.

Fyrirsagnir víðast með stærra letri og stafir stundum dálítið skreyttir.

Fyrsta lína með stærra letri og stafir dálítið skreyttir.

Griporð pennaflúruð.

Bókahnútar á bl. 41r, 44r og 48r

Notaskrá

Titill: Sagan af Hrafnkeli Freysgoða
Ritstjóri / Útgefandi: Konráð Gíslason, P.G. Thorsen
Titill: Íslenzkar Fornsögur, Gluma og Ljósvetninga saga
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Þorláksson
Umfang: I
Titill: Svarfdæla saga og Þorleifr Þáttr jarlsskálds, Íslenzkar Fornsögur
Ritstjóri / Útgefandi: Finnur Jónsson
Umfang: III
Titill: Svarfdæla saga, Rit Handritastofnunar Íslands
Ritstjóri / Útgefandi: Jónas Kristjánsson
Umfang: 2
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Andersen, Merete Geert
Titill: , Colligere fragmenta, ne pereant
Umfang: s. 1-35
Titill: Vápnfirðinga saga, Nordiske Oldskrifter
Ritstjóri / Útgefandi: Gunnlaugur Þórðarson
Umfang: V
Titill: Viga-Glums saga: sive Vita Viga-Glumi. ... Cum versione Latina
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Pétursson, Suhm, Peter Frederik
Titill: Íslendínga sögur
Ritstjóri / Útgefandi: Þorgeir Guðmundsson, Þorsteinn Helgason
Umfang: 2 v.
Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Safn Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM 144 fol.
  • Fleiri myndir
  • LitaspjaldLitaspjald
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn