Brot úr Rannsóknaþætti og Ómagabálki.
Leifar af tveimur blöðum, sem hér segir: (a) ytri helmingur (225 mm x 90 mm) af blaði sem skorið hefur verið af langsum; skinnið er götótt og fúið, einkum að ofan og neðan; (b) 5 strimlar (nú í 8 hlutum).
Íslenskt jarðakaupabréf á 1v er viðbót frá 1465; þar hefur eldri texti líklega verið skafinn burt. Á spássíu 1r sést niðurlag dansks texta með 16. aldar hendi er varðar viðskipti á milli tveggja Íslendinga, en það kemur vel heim við athugagrein Árna Magnússonar (sjá seðil) þar sem hann segir að brotin hafi fundist í Danmörku.
Band frá ágúst 1969.
Umslag með hendi Árna Magnússonar: „Úr Grágás fundið í Danmörku. Hefði verið brúk að til uppskafnings að rita á bréf. Smáu geirarnar eru einar úr tveimur innsiglum er lágu laus, er svo óvíst hvert þau séu undan nefndu bréfi.“
Brotin eru frá um 1200, skv. Katalog I , bls. 262. Þau eru tímasett c1200-1225 í ONPRegistre , bls. 441, en jarðakaupabréfið á 1v er frá 1465.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. nóvember 1974.
Tekið eftir Katalog I , bls. 262-63 (nr. 470). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í janúar 1886. Haraldur Bernharðsson skráði febrúar 2001.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í ágúst 1969. Eldra band fylgir í öskju.