„Skalholts Biskupa Annall“
„Teitur het madur er Skalholt bigde first ...“
„... andadist | 1568 j fóstu jnngang“
Pappír með vatnsmerkjum:
Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Skjaldarmerki með kórónu (t.d. bl. 5+6, 10+17, 11+16).
Blaðmerking 3-46 (bl. 2r-23v) þar sem önnur hver blaðsíða er merkt. Merkingin á bl. 1r virðist hafa horfið, blaðið er skaddað á jöðrunum, en síðan hefur einhver merkt það nr. 1 með blýanti.
Þrjú kver og tvö stök blöð:
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Í upphafi kafla og í fyrirsögnum eru upphafsstafir á örfáum stöðum dregnir ögn stærra, kansellískrift.
Bókahnútur á 23v.
Band frá nóvember 1973 (211 mm x 181 mm x 16 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Tvö saurblöð úr bandi. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.
Eldra band er pappaband. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Safnmark skrifað á bókarkápu, tveir límmiðar á kili með safnmarki og númer.
Árni Magnússon fékk handritið árið 1710 hjá Benedikt Hannessyni frá Snæfjöllum, en hann frá Grími Einarssyni, Eyjólfssonar (sbr. seðil).
Árið 1730 var handritið hluti af No 408 in 4to (sbr. AM 456 fol., 19r; AM 477 fol., 31r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1973.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.