Á tvinni sem heldur utan um handritið er mótmerki „PDB“, sennilega Skjaldarmerki Amsterdam. (Sjá t.d. AM 716 a 4to).
Blaðsíðumerking á efri ytri spássíu með svörtu bleki 1-8, síðari tíma viðbót.
Fjögur stök blöð sem hafa síðar verið fest saman til að mynda 2 tvinn.
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift. Sami skrifari og í AM 716 a 4to, AM 716 b 4to, AM 716 i 4to og AM 716 k 4to
Stafir í upphaf rímna eru dregnir aðeins stærri.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Ígildi bókahnúts, lykkja (bl. 4r).
Band frá í desember 1978.
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saurblöð tilheyra nýju bandi.Límmiði framan á og á kili með safnmerki
Eldra band frá c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri á kili.
Varðveitt með handritinu.
Restaureret og indbundet af Birgitte Dall dec. 1978
Vedlagt: Gammelt bind.“Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til 17. aldar í Katalog II, bls. 137.
Samkvæmt AM 477 fol. voru einnig í AM 716 4to eftirfarandi kvæði, sem eru þar ekki lengur: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: „Sárt er sverð í nurum“, Harmagrátur, upphaf: „Einn Guð almáttugur“ og Hugræða, upphaf: „Einn og þrennur allsvaldandi herra“, öll með einni hendi, með settaskrift.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. október 1979.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í desember 1978. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.