Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 716 h 4to

Ljómur ; Ísland, 1600-1700

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-4r)
Ljómur
Titill í handriti

Ljómur

Athugasemd

Á bl. 4v eru tvö vers, undir hinu fyrra stendur, samanfléttað: SEs mpropria.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Kanna með einu handfangi (bl. 1, 2, 3).
  • Á tvinni sem heldur utan um handritið er mótmerki PDB, sennilega af Skjaldarmerki Amsterdam (sjá t.d. AM 716 a 4to).
Blaðfjöldi
i + 4 + i blað (202 mm x 155 mm).
Tölusetning blaða

Blaðsíðumerking á efri ytri spássíu með svörtu bleki 1-8, síðari tíma viðbót.

Kveraskipan

Fjögur stök blöð sem hafa síðar verið fest saman til að mynda 2 tvinn.

Umbrot
  • Eindálka.
  • Leturflötur er 165 mm x 115 mm.
  • Línufjöldi er 27-29.
  • Griporð, pennaflúr.
Ástand
  • Blöð eru dökk og snjáð.
  • Blöð eru flest óskorin.
  • Blettótt.
  • Eldri viðgerðir.
  • Bleksmitun (bl. 4v).
Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Sami skrifari og í AM 716 a 4to, AM 716 b 4to, AM 716 i 4to og AM 716 k 4to (sbr. Katalog II, bls. 133-135).

Skreytingar

Stafir í upphaf rímna eru dregnir aðeins stærri.

Skreyting við eða umhverfis griporð.

Ígildi bókahnúts, lykkja (bl. 4r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
  • Á bl. 4v hefur síðari tíma hönd bætt við tveimur erindum.
  • Síðari tíma hönd hefur bætt við númerum við erindin.
Band

Band frá í desember 1978. Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saurblöð tilheyra nýju bandi.

Límmiði framan á og á kili með safnmerki.

Eldra band frá c1772-1780 varðveitt með handritinu. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titill og safnmark skrifað framan á kápu með dökk brúnu bleki. Á spjaldblöðum er prentað mál. Tveir límmiðar með safnmarki og hlaupandi númeri á kili.

Fylgigögn
  • Á tvinni sem er utan um handritið stendur með hendi Árna Magnússonar: Ljómur.
  • Laus seðill frá forverði í Kaupmannahöfn: AM 716 h 4to. Restaureret og indbundet af Birgitte Dall dec. 1978. Vedlagt: Gammelt bind.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til 17. aldar (sjá Katalog II, bls. 137).

Handritið var áður hluti af stærri bók. Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 716 a 4to og AM 716 b 4to.

Ferill

Árið 1730 voru blöðin hluti af No. 716 in 4to (sbr. AM 456 fol., 27r-v; AM 477 fol., 48v-49r). Þá voru einnig eftirfarandi kvæði í No. 716 in 4to, sem eru ekki lengur til: Píslarminning eignuð Kolbeini Grímssyni, upphaf: Sárt er sverð í nurum, Harmagrátur, upphaf: Einn Guð almáttugur og Hugræða, upphaf: Einn og þrennur allsvaldandi herra, öll með einni hendi, með settaskrift.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. október 1979.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 5. mars 2024.
  • ÞS skráði 26. september 2001.
  • Tekið eftir Katalog II , bls. 137 (nr. 1792). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?.
Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í desember 1978. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Íslensk miðaldakvæði I.2
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Helgason
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Ljómur

Lýsigögn