„[M]örður er maður nefndur er kallaður var gígja …“
„… Son Brennu-Flosa var Kolbjörn, vitrastur maður í þeirri ætt. Endast þessi saga, sælir alla daga.“
„Þessi saga var skrifuð eftir bón velburðugs manns, Daða Jónssonar sem þá var kóngs umboðsmaður yfir Kjósasýslu. 8. maí 1688“
Morknað hefur lítillega úr texta á blaði 1.
Pappír með vatnsmerkjum.
Mótmerki 1: Flagg með þremur bókstöfum, RGH? (IS5000-02-0163i_3v), bl. 2-3. Stærð: 12 x 33 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 50 mm.
Notað í 1668.Mótmerki 2: Flagg með þremur bókstöfum, ICO (IS5000-02-0163i_12r), bl. 6-7, 9-10, 12-13, 16, 19-20, 22, 25-26, 30, 32-34, 36, 39, 41-42, 44, 46, 48. Stærð: 12 x 34 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 25 mm.
Notað í 1668.Ekkert mótmerki.
Notað í 1668.Ekkert mótmerki.
Notað í 1668.
13 kver:
Band (323 mm x 220 mm x mm) er frá 1977. Spjöld eru klædd fínofnum striga. Grófari strigi er á kili og hornum.
Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
Strimlar úr eldra bandi fylgja með. Þeim hefur verið komið fyrir í fjórum plastvösum sem saumaðir hafa verið á móttök milli blaðs 60v og aftara saurblaðs rektó og tilheyra núverandi bandi
Handritið er skrifað á Íslandi árið 1668 í Saurbæ á Kjalarnesi, fyrir Daða Jónsson (sbr. blað 60v).
Handritið var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 163 k fol., AM 129 fol., AM 164 c fol. og AM 5 fol..
Árni Magnússon fékk bókina sem blöðin voru tekin úr frá Jóni Daðasyni (sbr. t.d. seðil).
Árið 1730 var handritið hluti af No. 163 in fol. (sbr. AM 456 fol., 4v-5r og AM 477 fol., 7v-8r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 24. maí 1977.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 21. desember 1885 í Katalog I; bls. 129 (nr. 212). DKÞ grunnskráði 30. mars 2000 VH skráði handritið samkvæmt TEIP5 reglum 19. desember 2008; lagfærði í nóvember 2010. ÞÓS skráði 23. júní 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 29. maí 2023 og kveraskipan 5. júní 2023. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, 12. febrúar 2024
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1977. Eldra band fylgir(?).
Gömul viðgerð, pappírsræmur (skrifaðar) límdar á blaðjaðra til styrktar. Fylgja nú í fjórum plastvösum aftast í handritinu.