Manuscript Detail

PDF
PDF

AM 129 fol.

Eyrbyggja saga ; Iceland, 1650-1699

Language of Text
Icelandic

Contents

1 (1r-26v)
Eyrbyggja saga
Rubric

Hér hefur Eyrbyggju

Incipit

Ketill flatnefur hét hersir ættgöfugur …

Explicit

… fýstust ég þess sagði Þorsteinn og skildu við svo búið.

Colophon

Hér endar þessi saga, sælir alla daga.

Note

Ofangreind skrifaraklausa er á blaði 26v.

Á stöku stað gerir skrifari eyður í uppskrift sína (hugsanlega vegna ólæsilegra orða í frumriti).

2 (26v)
Tvær vísur
Text Class
2.1 (26v)
Vísa um Björn Ásbrandsson
Rubric

Vísa um Björn Ásbrandsson

Incipit

Leið fór Björn svo bráða Breiðvíkingur …

Explicit

… dauðann veitti kauðum.

Text Class
2.2 (26v)
Vísa um Steinþór Þorláksson
Rubric

Vísa um Steinþór Þorláksson

Incipit

Steinþór á Eyri stundum standa …

Explicit

… henti spjót og sendi.

Colophon

H:M:S:M:E:H:

Note

Ofangreind skrifaraklausa er á blaði 26v.

Text Class

Physical Description

Support

Pappír með vatnsmerkjum.

Vatnsmerki 1. Aðalmerki: Fangamark CHVORK, fyrir ofan er Hermans orf flagg og ártal 1670 fyrir neðan // Ekkert mótmerki (1-3, 5, 8, 10-11, 13).

Vatnsmerki 2. Aðalmerki: Dárahöfuð, 4 stórar bjöllur á kraga, stór Hermes kross og 3 stórir hringir á staf (18-20, 24) // Mótmerki: Fangamark RONDEL (17, 21-23, 25-26).

No. of leaves
i + 26 + i blað (304 mm x 194 mm).
Foliation

Blaðmerkt með bleki 1, 5, 10… 20, 25 og 26. Blöðin á milli, þ.e. 2, 3, 4,… 6, 7, 8, 9… 11, 12, o.s.frv. eru merkt með blýanti.

Collation

5 kver:

  • Kver I: spjaldblað - fylgigögn 1 (eitt tvinn + eitt blað)
  • Kver II: bl. 1-16 (8 tvinn: 1+16, 2+15, 3+14, 4+13, 5+12, 6+11, 7+10, 8+9)
  • Kver III: bl. 17-24 (4 tvinn: 17+24, 18+23, 19+22, 20+21)
  • Kver IV: bl. 25-26 (1 tvinn: 25+26)
  • Kver V: aftara saurblað 1 - spjaldblað (eitt tvinn)

Layout

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 250-255 mm x 150-160 mm.
  • Línufjöldi er ca 34-36.
  • Kaflaskipting, 39 kaflar.

Condition

  • Blettir eru víða á blöðum; texti þó yfirleitt læsilegur (sbr. t.d. 10v-12r).
  • Texti á spássíum hefur sumstaðar skerts vegna afskurðar blaða, sjá t.d. blað 1v.

Script

Decoration

Fyrsti höfuðstafur er ca 3 línur og fínlega skreyttur (bl. 1r). Aðrir höfuðstafir eru um 1-2 línur og eru minna skreyttir.

Fyrsta lína kafla er skrifuð með aðeins hærri og skreyttum stöfum.

Additions

  • Aftast leysir Árni Magnússon úr upphafsstöfum skrifarans, með hendi um 1720: Hinrik Magnússon er bjó í Saurbæ (26v).
  • Spássíugreinar, sbr. t.d. á blöðum 1v-2r.

Binding

Band (310 mm x 220 mm x 20 mm) frá 1973. Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum, saumað á móttök. Ný saurblöð.

Eldra pappaband (305 mm x 198 mm x 8 mm) frá ca 1730-1780. Eldri saurblöð fylgja eldra bandi. Safnmark og titill er ritað framan á kápuspjald. Blár safnmarksmiði er á kili.

Accompanying Material

  • Fastur seðill (45 mm x 149 mm) á blaði 1r með hendi Árna Magnússonar: Eyrbyggja saga. Úr bók er ég fékk af monsieur Jónasi Daðasyni.
  • Laus miði með upplýsingum um forvörslu bands.

History

Origin

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til 17. aldar í  Katalog I, bls. 92, en virkt skriftartímabil skrifara var á s.hl. 17. aldar. Rannsóknir á vatnsmerkjum benda til þess að handritið hafi verið ritað eftir 1670.

Handritið var áður hluti af stærri bók (sbr. seðil). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 163 k fol., AM 163 i fol., AM 164 c fol. og AM 5 fol.. Jakob Benediktsson (1958, xviii-xix) hélt því fram að AM 108 fol. hafi verið í sömu bók og AM 129 fol., AM 163 k fol. og AM 164 c fol. en Beeke Stegmann telur líklegara að blöðin sem nú eru í AM 108 fol. hafi verið í öðru handriti sem Árni Magnússon fékk frá Jónasi Daðasyni Gam.

Provenance

Árni Magnússon fékk bókina sem handritið tilheyrði frá Jónasi Daðasyni (sjá seðil).

Acquisition

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 4. mars 1974.

Additional

Record History

Kålund gekk frá handritinu til skráningar November 17, 1885 í Katalog I, bls. 92-93 (nr. 158), ÓB tölvuskráði August 31, 2001, VH skráði handritið skv. TEIP5 reglum March 03, 2009; lagfærði í November 2010 ÞÓS skráði June 16, 2020. EM lagfærði kveraskipan June 12, 2023. MJG uppfærði skráningu með gögnum frá BS, February 12, 2024.

Custodial History

Viðgert og bundið af Birgitte Dall 1973. Eldra band fylgir og saurblöð.

Matthias Larsen Bloch batt ca 1730-1780.

Surrogates

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn. 

Bibliography

Metadata
×

Metadata