„Rímur af Grími Jarlssyni. Fyrsta ríma“
„Fálkinn Óma flýgur enn …“
„… álfar góðir virði.“
Fjórar rímur (sjá nánar Rímnatal 1966: 174).
„Rímur af Alexander og Loðvík“
„Þundar eðli árgalans …“
„… árgalann nauð blakka.“
Alls eru rímurnar átta (sjá Rímnatal 1966: 513) en hér endar uppskriftin óheil; í henni er aðeins mansöngur og upphaf fyrstu rímu (það vantar í handritið (sjá: Tölusetning blaða)). Rímurnar eru ortar 1763 fyrir Jón Árnason sýslumann á Ingjaldshóli (sbr. Rímnatal 1966: 16-17).
„Rímur af reisusögu vísilögmanns Eggerts Ólafssonar 1768, kveðnar af Árna Þorkelssyni. Fyrsta ríma “
„ Suðra renni eg súðar hind …“
Tvær rímur (sjá nánar Rímnatal 1966: 398).
Blaðsett af skrásetjara með blýanti: 1-30.
Sex kver.
Tveir óþekktir skrifarar; sprettskrift, kansellískrift.
Fyrirsagnir og fyrsta lína rímu eru með stærra letri og settara en annars er á textanum (sjá t.d. blöð 7r og 14r). Fyrirsögnin á blaði 14r er fyllt með rauðum lit og fyrsta lína textans er rituð með svörtum fylltum stöfum.
Band (183 mm x 110 mm x 7 mm) er líklega frá síðari hluta 18. aldar. Kverin eru saumuð inn í samanbrotna pappírsörk. Utan um pappírskverið er band af annarri bók. Pappaspjöld eru klædd með pappír (marmaralíki). Brúnt skinn með gyllingu er á kili. Á kili stendur VORHUGV (sjá nánar: Ástand).
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 91,92, 93, 94, 95 og 96.
Handritið var sennilega skrifað á Íslandi, á síðari hluta 18. aldar.
VH skráði í september 2010.