„Þó hinum stoltu Pharizæis …“
„… og því samankomið í eitt bindi.“
Formálinn er saga fyrstu kristni á Íslandi með skírskotun í Heilaga Ritningu og íslensk fornrit jafnt sem Arngrím lærða neðanmáls.
„Röð eða registur þeirra pápísku biskupanna í Skálhol[ti]“
„Ísleifur Gissurarson …“
„… Ögmundur Pálsson.“
Getið er um fæðingarár biskupanna, hvers lenskir þeir voru eða hvaðan af landinu, vígsluár, fjölda ára í embætti, aldur og andlát eða burthvarf af biskupsstól.
„Registur hinna evangelísku biskupa í Skálholti“
„Gissur Einarsson …“
„… Jón Þorkelsson Vídalín.“
Getið er um fæðingarár biskupanna, hvers lenskir þeir voru eða hvaðan af landinu, vígsluár, fjölda ára í embætti, aldur og andlát eða burthvarf af biskupsstól.
„Nær og hvað oft hér hafi verið biskupslaust í Íslandi síðan Ísleifur varð biskup“
„Anno 1008 eftir dauða Ísleifs …“
„… biskupslaust varð allt til þessa.“
„Þrír biskupar og fleiri hér í senn á Íslandi“
„Anno 1188 þrír biskupar á Íslandi …“
„… og að 2 biskupar væri hér ekki eins.“
„Ísleifur biskup var kominn af hinum göfugustu landnámsmönnum …“
„… svo hún hefur andast anno 1561.“
29 kaflar. Kaflafyrirsagnir eru nöfn viðkomandi biskups.
„Síðan Ísland byggðist …“
„… samt lifir mannorðið lengst.“
Biskupasögur Jóns prófasts Halldórssonar í Hítardal I 1903-1910
Hefst á formála. Þá eru 8 kaflar. Kaflafyrirsagnir eru nöfn viðkomandi biskups.
„Concio Episcopi Mag: Vídalíni Dominica iv. post trinitatis De jure. Exegesis.“
„Næst heilögu Guðs orði …“
„… fyrir þína forþénustu. Amen.“
Bl. 1r-115r og 126r-133v með hendi Vigfúsar Jónssonar, fljótaskrift.
Bl. 115v-126r með óþekktri hendi, fljótaskrift.
Bl. 134r-420v með óþekktri hendi, fljótaskrift. Bl. 332v-336v með sprettskrift.
Fyrirsagnir eru blekfylltar og sums staðar dálítið flúraðar.
Mannsandlit teiknað í staf í fyrirsögn á bl. 14r, 62v, 136r.
Band frá ca 1750-1760 (197 mm x 152 mm x 75 mm). Tréspjöld klædd skinni. Einfalt flúr á kápu og kili. Blá saurblöð fremst og aftast. Spjaldblöð úr sama pappír.