Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

SÁM 42 I-II

Lækningabækur

Athugasemd
Samsett úr tveimur handritum.

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
394 blöð í oktavó.
Band

Band frá 1671 (172 mm x 106 mm x 52 mm). Tréspjöld og kjölur klædd brúnu skrautþrykktu skinni með spennum, en þvengi og krækjur vantar. Kjölur upphleyptur. Fangamark skrifara HGS og ANNO er þrykkt á fremra spjald, en ártalið 1671 (MDCLXXI) á aftara spjald. Engin haldbær skýring finnst á misræminu milli ártalsins á bandinu (1671) og skriftarári fremra handritsins (1673). Ekkert bendir til annars en að bæði handritin hafi verið bundin í einu.

Fylgigögn

  • Fremst í handritinu er laus seðill með hendi frá 20. öld. Á honum eru nöfnin Karl Jónsson Múla og Sigurður, en einnig skammstafanirnar Gest og Bkr. Vera kann að hér sé átt við Karl Anton Jónsson bónda í Múla í Álftafirði (1887-1962).
  • Milli bl. 83 og 84 er útsaumað bókamerki.

Uppruni og ferill

Ferill

Sennilega á þessi ferilslýsing við bæði handritin: Á bl. 282v vottar Þorleifur Kláus Brynjólfsson bóndi á Ystu-Grund í Blönduhlíð í Skagafirði ( Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu 1781-1953 (III), 1956:60 ) að hann hafi keypt handritið af Birni Jónssyni. Ekkert er vitað um Björn þennan, en leiða má getum að því að e.t.v. sé þetta sonur Jóns Hannessonar Gunnlaugssonar. Björn lést erlendis, en annað er ekki vitað um ævi hans ( Espólín 957 ). Þorleifur skrifar og nafn sitt nokkrum sinnum á 283v og klausu á þýsku um að hann hafi fengið handritið frá Birni.

Síðar hefur handritið komist í eigu Brynjólfs Halldórsson Hólabiskups Brynjólfssonar, en hann seldi það Jóni Gunnlaugssyni, presti á Ríp, 2. janúar 1767 (283r). Ekki er vitað hvernig Brynjólfur eignaðist handritið, en vera kann að Þorleifur Kláus hafi gefið honum það, en hann var föðurbróðir Brynjólfs.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu af dönskum manni á árunum 1971-1994.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • DKÞ færði inn grunnupplýsingar 1. mars 2001 eftir ópr. skrá um SÁM-handrit.
  • GI skráði 19. janúar 2004.

Hluti I ~ SÁM 42 I

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-106r)
Compendium medicinale
Titill í handriti

Compendium | medicinale | edur | stutt agrip lækningslÿ|starennar | jnnehalldande tvo par|ta | fyrre vmm y yn ytre re soottarferlenn | sÿdare vmm þauh ytre sőtta | tilferlenn hin almennustu: | Saman skrifad | epter Manuale Medico sa̋luga | s: Odds a̋ Reinevóllum og sal: | Jőns Sigurdßonar j Kära|nese | af mier Hannese Gunnlógßyne | Anno 1673

Upphaf

Hofudverkur af kulda

Niðurlag

og þek þig so vel og svitna 3 stunder

Athugasemd

Á 1v er tafla yfir mælieiningar: Notæ ponderum usitatorum .

Aftan við er latnesk vísa: Inimici medicorum ajunt.

Lækningabókin er að mestu skrifuð eftir Manuale medica þeirra Odds Oddssonar á Reynivöllum (AM 700 a 4to) og fósturföður hans Jóns Sigurðssonar í Káranesi (sbr. 1r). Um lækningabækur séra Odds á Reynivöllum, sjá Stefán Karlsson 1981.

Lækningabókinni er skipt í tvo hluta og hefst sá síðari á 37r: Annar partur lækn|inganna | vmm wtvortis mein|semder.

Bl. 15r og 36v auð, bl. 25r að mestu autt.

2 (106v-108r)
Registur yfer þetta læ|kninga compendium
Titill í handriti

Registur yfer þetta læ|kninga compendium

Athugasemd

Neðan við efnisyfirlitið á bl. 108r: Gloria magna Deo; compar | tibi gloria nate | flamine cum sancto, glo|ria magna Deo.

3 (108v-110r)
Viðbót við lækningabókina
Upphaf

Oximel simplex crassos humores

Niðurlag

stroked j naser|nar og umm þunnvangana

4 (110v-111r)
Kvikasilfur
Titill í handriti

Kvikasilfur

Upphaf

1 Cornelius Agrippa skrifar ad sa̋ | madur

Niðurlag

ad la̋ta stulku vnna sier ok | sig ad ellta

Athugasemd

Aftan við stendur: Þetta er skrifad j synu gillde.

Bl. 111v autt.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
111 blöð í oktavó (157-158 mm x 101-102 mm). Auð blöð: 15r, 36v og 111v; 25r að mestu autt.
Tölusetning blaða

Blaðmerking með bleki 1-104 (2r-105r).

Kveraskipan

Fjórtán kver:

  • 1 stakt blað (titilsíða).
  • Kver I: bl. 2-9, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 10-17, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 18-25, 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 26-33, 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 34-41, 4 tvinn.
  • Kver VI: bl. 42-49, 4 tvinn.
  • Kver VII: bl. 50-57, 4 tvinn.
  • Kver VIII: bl. 58-65, 4 tvinn.
  • Kver IX: bl. 66-73, 4 tvinn.
  • Kver X: bl. 74-81, 4 tvinn.
  • Kver XI: bl. 82-89, 4 tvinn.
  • Kver XII: bl. 90-97, 4 tvinn.
  • Kver XIII: bl. 98-105, 4 tvinn.
  • Kver XIV: bl. 106-111, 3 tvinn.

Umbrot

  • Leturflötur er 115-123 mm x 73-78 mm.
  • Línufjöldi er 20-24.
  • Griporð, en á stöku stað eru síðustu orð á síðu í stöðu griporðs.

Ástand

  • Gömul viðgerð á bl. 1.
  • Vottar e.t.v. fyrir raka, einkum aftarlega í hdr.
  • Blettur á 4v og 5r.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Hannes Gunnlaugsson.

Skreytingar

Litskreytt titilsíða á 1r, litur rauður, grænn og gulur.

Litskreyttur titill, kaflanúmer, kaflafyrirsögn og upphaf á 37r.

Pennaflúr í kaflaheitum og kaflanúmerum, t.d. 20v, 30v, 51v og 55r.

Pennaflúraðir upphafsstafir í upphafi kafla, t.d. 20v og 31v.

Pennaflúraðir stórir stafir, t.d. 29v, 33v og 34v.

Bókahnútur á 108r.

Örlítið pennaflúr um sum griporð, t.d. 45r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Viðbót við texta á 97r.
  • Af bleklit að dæma hefur efnisgreinum stundum verið bætt aftan við texta, t.d. 31r og 36r.
  • Áherslumerki, t.d. 15v og 42v.
  • Pennaprufur á 25v og 111r.
  • Víða eru rauð strik í handritinu, e.t.v. til áherslu og minnis, t.d. 14v og 16v.

Fylgigögn

Milli bl. 9 og 10 er laust blað, autt, úr sama pappír og önnur blöð handritsins. Ekki er ljóst hver tilgangurinn er með þessu blaði. Um önnur fylgigögn, sjá inngangsfærslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað af Hannesi Gunnlaugssyni frá Reykjafirði í Vatnsfjarðarsveit, árið 1673 (1r).

Ferill

Sjá inngangsfærslu.

Hluti II ~ SÁM 42 II

Tungumál textans
íslenska
1 (1r-259v)
Libellus medicinalis
Titill í handriti

Libellus medici|nalis. | Læknÿnga kver korn: Jnne | halldande, j fyrstu nockud af læknings | bők Niels Mikels sonar, j annan mata | wr bők sera Christians Villassonar: j þr|idia lagie: nockra jurta og grasa regi|stur sem hier vaxa: med sőttanna nofnum: | j fiőrda ma̋ta vmm na̋tturur ymislegra | tegunda, saman skrifad Gude til æru | og dyrdar enn na̋unganum (ef ske mætte) | til gagns og nytsemda. | Lofe Drottenn allar þiőder, og | mikle hann allur lÿdur | … Anno Domini M:DC:LX:IX

Upphaf

Fyrsta bők Niels Michels sonar

Niðurlag

Hue usque Deodatus phylosophiæ et | medicinæ doctor

Athugasemd

Lækningabókin er að mestu skrifuð eftir bókum Níelsar Mikaelssonar og Kristjáns Villadssonar.

Titilsíðan er á 1r, á 1v er bæn (Bæn Remundi Lullii sem hann var vanur að biðja áður hann gaf þeim sjúku sín medicamenta ), en bókin hefst síðan á 2r.

Aftan við stendur: Excelsus super omnes Deos do|minus et super cælos gloria | ejus. | Finis hujus libri. | Anno 1669

2 (260r-276v)
Registur þessarar bookar
Titill í handriti

Registur þessarar bookar

Athugasemd

Bl. 274v autt, sem og bl. 276r, ef frá er talin blaðmerkingin 280.

3 (277r-281v)
Almennustu sóttaferlaregistur uppá ABC yfir framanskrifað kver þetta, að því fljótara sérhvað finnast megi
Titill í handriti

Almennustu sóttaferlaregistur uppá ABC yfir framanskrifað kver þetta, að því fljótara sérhvað finnast megi

Athugasemd

Bl. 282r autt, ef frá er talin blaðmerkingin 287. Um efnið á 282v-283v, sjá spássíugreinar og aðrar viðbætur, sem og feril.

Lýsing á handriti

Umbrot

  • Leturflötur er 125-135 mm x 81-87 mm.
  • Línufjöldi er 22-31.
  • Griporð eru víðast hvar, en þeim fylgja gjarnan síðustu orð á síðu, t.d. 3v, 4v, 5v og 6v. Á stöku stað eru síðustu orð á síðu í stöðu griporðs, t.d. 13v, 15v og 17v.
  • Númer á spássíum, t.d. 12r, 27v og 28r.

Skrifarar og skrift

Ein hönd.

Hannes Gunnlaugsson.

Skreytingar

Litskreytt titilsíða á 1r, litur rauður, grænn og blár.

Pennaflúr í titli á 277r.

Laufskreyti á spássíu á 69v.

Bókahnútar á 1r, 6r, 19r, 26r, 52v, 57r, 118r, 131r, 134r, 135r, 259v og 282v (viðbót).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Víða tilvísanir til efnis, t.d. 2v og 3r.
  • Svo virðist sem efnisgrein hafi verið bætt aftan við texta á 61v.
  • Leiðréttingar og viðbætur við textann út á spássíum og inni í texta, t.d. 71r, 72r-v og 73r.
  • Upplýsingar um feril á 282v og 283r (sjá feril).
  • Vísupartur á 282v: Guð minn lof þitt greiðist/gjörvalls heims um hring.
  • Áherslumerki, t.d. á 67v og 81v.
  • Víða rauð strik í handritinu, e.t.v. til áherslu og minnis, t.d. 5v og 6r.

Fylgigögn

Sjá inngangsfærlsu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað árið 1669 (1r) og með sömu hendi og fremra handritið, þ.e. með hendi Hannesar Gunnlaugssonar.

Ferill

Á bl. 282v vottar Þorleifur Kláus Brynjólfsson bóndi á Ystu-Grund í Blönduhlíð í Skagafirði ( Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu 1781-1953 (III), 1956:60 ) að hann hafi keypt handritið af Birni Jónssyni. Ekkert er vitað um Björn þennan, en leiða má getum að því að e.t.v. sé þetta sonur Jóns Hannessonar Gunnlaugssonar, skrifara handritsins. Björn lést erlendis, en annað er ekki vitað um ævi hans ( Espólín 957 ). Þorleifur skrifar og nafn sitt nokkrum sinnum á 283v og klausu á þýsku um að hann hafi fengið handritið frá Birni.

Síðar hefur handritið komist í eigu Brynjólfs Halldórsson Hólabiskups Brynjólfssonar, en hann seldi það Jóni Gunnlaugssyni, presti á Ríp, 2. janúar 1767 (283r). Ekki er vitað hvernig Brynjólfur eignaðist handritið, en vera kann að Þorleifur Kláus hafi gefið honum það, en hann var föðurbróðir Brynjólfs.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn