Skráningarfærsla handrits

SÁM 5

Olgeirs saga danska ; Ísland, 1890-1910

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-143r)
Olgeirs saga danska
Titill í handriti

Sagan af Olgeiri konungi danska

Upphaf

Gautrekur er konungur nefndur er réð fyrir Danmörk …

Niðurlag

… móti útlendra manna ófriði og yfirgangi.

Baktitill

Lýkur hér sögu Olgeirs danska.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
143 blöð (200 +/- 2 mm x 165 +/- 2 mm). Blað 143v er autt.
Tölusetning blaða

Handritið er blaðsíðumerkt 1-285.

Arkir eru númeraðar með bláum lit á neðri spássíu sumra blaða, 1-36.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 160 mm x 145 mm.
  • Línufjöldi er 26.

Ástand

Band er laskað og blöð skítug.

Gert hefur verið við sum blöðin með því að líma pappírsstrimla við kjöl eða jaðra.

Skrifarar og skrift

Óþekktur skrifari, snarhönd.

Band

Bundið um aldamótin 1900 (201 mm x 170 mm x 35 mm). Pappaspjöld klædd rústrauðum pappír sem farinn er að rifna frá á jöðrum, kjölur úr striga. Bundið með hamptaumum. Spjaldblöð úr hvítum pappír.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, líklega um aldamótin 1900.

Ferill

Ólína Tómasdóttir á Steinólfsstöðum hefur átt handritið (sbr. spjaldblað fremst).

Aðföng

Handritið var keypt af Jóhanni Gunnari Ólafssyni bæjarfógeta á Ísafirði um 1968.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

ÞS skráði 16. júlí 2008.

Lýsigögn
×

Lýsigögn