Skráningarfærsla handrits

SÁM 6

Sögubók ; Ísland, 1800-1900

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (3r-28v (bls. 3-54))
Niklás saga leikara
Upphaf

… og hafa ágætir meistarar …

Niðurlag

… ágætis maður verið hafa en Nik(ulás). Og endar svo sagan.

Athugasemd

Vantar framan af sögunni.

Blað 1r er autt að mestu (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur). Á blaði 1v er efnisyfirlit yfir efni bókarinnar.

Blað 2 er autt.

Efnisorð
2 (29r-48v (bls. 55-94))
Sigurðar saga og Signýjar
Titill í handriti

Sagan af Tryggva Karlssyni, Sigurði og Signýju kóngsbörnum

Upphaf

Það var einu sinni að kóngur og drottning …

Niðurlag

… stýrðu þeir sínum ríkjum vel og lengi. Og endum vér svo sögu þessa.

Efnisorð
3 (48v-67r (bls. 94-131))
Partalópa saga
Titill í handriti

Sagan af Partalopa

Upphaf

Svo er sagt að fyrir Miklagarði réð …

Niðurlag

… en ríki tóku eftir þau, þó ei sé hér af því skrifað

Baktitill

Og lýkur svo þessari sögu af Partalópa og Marmoríu

Efnisorð
4 (67r-77r (bls. 131-151))
Ketils saga hængs
Titill í handriti

Sagan af Katli hæng

Upphaf

Hallbjörn hét maður; hann var kallaður hálftröll …

Niðurlag

… En Örvar-Oddur var sonur Gríms. Og lýkur hér svo þessari sögu.

Efnisorð
5 (77r-106v (bls. 151-210))
Grega saga
Titill í handriti

Sagan af Gibeon og Grega kóngsdóttur

Upphaf

Vilhjálmur hefur kóngur heitið …

Niðurlag

… sínum ríkjum með sæmd og sóma vel og lengi og lyktum vér svo þessa sögu.

Efnisorð
6 (106v-118v (bls. 210-234))
Sagan af Remundi og Melusínu
Titill í handriti

Sagan af Remundi og Melusínu

Upphaf

Sá vísi meistari Aristoteles skrifar …

Niðurlag

… Sem þeim sjálfum viðkemur.

Efnisorð
7 (119r-143v (bls. 235-284))
Sagan af Damusta
Titill í handriti

Sagan af Damusta

Upphaf

Það er upphaf á þessari sögu að einn ágætur hersir …

Niðurlag

… og liggja þau þar fjögur í einni gröf og fellur hér á söguna endir.

Efnisorð
8 (144r-168r (bls. 285-333))
Þjalar-Jóns saga
Titill í handriti

Sagan af Þjálar-Jóni

Upphaf

Vilhjálmur hefur kóngur heitið …

Niðurlag

… enn annar Svipdagur eftir föður hennar.

Baktitill

Og endum vér svo sögu af Þjalar-Jóni hinum ráðklóka.

Efnisorð
9 (168v-176r (bls. 334-349))
Sagan af Drauma-Jóni og Hinriki jarli
Titill í handriti

Sagan af Drauma-Jóni

Upphaf

Hinrik er maður nefndur, jarl að tign …

Niðurlag

… en tóku vænan kastala með ríkum eignum.

Baktitill

Og lýkur svo þessari sögu af Drauma-Jóni

Efnisorð
10 (176v-202v (bls. 350-414))
Sturlaugs saga starfsama
Titill í handriti

Sagan af Sturlaugi starfsama

Upphaf

Haraldur hefur kóngur heitið …

Niðurlag

… höfum vér eigi heyrt af þessu efni meira og endast svo þessi saga.

Athugasemd

Blöð 203r-v eru auð að mestu.

Efnisorð
11 (204r-235v (bls. 417-480))
Þorsteins saga Víkingssonar
Titill í handriti

Sagan af Þorsteini Víkingssyni

Upphaf

Það er upphaf þessarar sögu …

Baktitill

Og lúkum vér nú söguna af Þorsteini Víkingssyni.

Efnisorð
12 (236-258v (bls. 481-526))
Jarlmanns saga og Hermanns
Titill í handriti

Jarlmanns saga

Upphaf

Einn ágætur kóngur réð fyrir Frakklandi …

Niðurlag

… og entu þar sitt líf en sá sonur þeirra tók ríki er Vilhjálmur hét.

Baktitill

Og lúkum vér svo þessari Jarlmanns sögu

Athugasemd

Blað 259 sem nú er aðeins ræma, hefur hugsanlega verið autt (?) (sbr. að á blaði 258v er niðurlag sögu og upphaf annarrar á blaði 260r).

Efnisorð
13 (260r-288v (bls. 529-586))
Víglundar saga
Titill í handriti

Sagan af Víglundi hinum væna

Upphaf

Haraldur hinn hárfagri var sonur Hálfdanar svarta …

Niðurlag

… og voru þrjú brúðkaupin undir eins haldin. Og endar hér söguna af Víglundi og Ketilríði.

Efnisorð
14 (289r-294r (bls. 587-597))
Illuga saga Gríðarfóstra
Titill í handriti

Sagan af Illuga Gríðarfóstra

Upphaf

Fyrir Danmörk réði kóngur sá er Hringur hét …

Niðurlag

… en ei hefur verið getið barna þeirra Hildar og hans.

Baktitill

Og lyktar þetta svo endasleppt og efnisrýrt af Illuga Gríðarfóstra.

Efnisorð
15 (294r-299r (bls. 597-607))
Bragða-Ölvis saga
Titill í handriti

Þáttur af Bragða-Ölver

Upphaf

Fyrir Danmörk réði sá kóngur er Sveinn hét…

Niðurlag

… og hafði þar stór ráð og metorð.

Baktitill

Og endast hér þátturinn af Bragða-Ölver.

Athugasemd

Blað 299v er autt.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 299 blöð (197-200 mm x 158-160 mm).
Tölusetning blaða

Upprunalegt blaðsíðutal: 3-386, 399-607; bls. 387-398 vantar í handritið, þ.e. efni á milli blaða 194 og 195v.

Blað 259 er aðeins blaðleif við innri spássíu.

Blöð eru tölusett af skrásetjara með blýanti (18.10.2010): 1-299.

Blöð 1r og 299v eru auð fyrir utan pennaprufur. Blað 2 er autt. Það er síðari viðbót, tilkomin við viðgerð handritsins (1976).

Kveraskipan

Þrjátíu og átta kver.

  • Kver I: blöð 1-9, 4 tvinn + 1 stakt blað.
  • Kver II: blöð 10-17, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 18-25, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 26-33, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 34-41, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 42-49, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 50-57, 4 tvinn.
  • Kver VIII: blöð 58-65, 4 tvinn.
  • Kver IX: blöð 66-73, 4 tvinn.
  • Kver X: blöð 74-81, 4 tvinn.
  • Kver XI: blöð 82-89, 4 tvinn.
  • Kver XII: blöð 90-97, 4 tvinn.
  • Kver XIII: blöð 98-105, 4 tvinn.
  • Kver XIV: blöð 106-113, 4 tvinn.
  • Kver XV: blöð 114-121, 4 tvinn.
  • Kver XVI: blöð 122-129, 4 tvinn.
  • Kver XVII: blöð 130-137, 4 tvinn.
  • Kver XVIII: blöð 138-145, 4 tvinn.
  • Kver XIX: blöð 146-153, 4 tvinn.
  • Kver XX: blöð 154-161, 4 tvinn.
  • Kver XXI: blöð 162-169, 4 tvinn.
  • Kver XXII: blöð 170-177, 4 tvinn.
  • Kver XXIII: blöð 178-185, 4 tvinn.
  • Kver XXIV: blöð 186-193, 4 tvinn.
  • Kver XXV: blöð 194-195, 1 tvinn (vantar bls.378-398; sjá: Tölusetning blaða) .
  • Kver XXVI: blöð 196-203, 4 tvinn.
  • Kver XXVII: blöð 204-211, 4 tvinn.
  • Kver XXVIII: blöð 212-219, 4 tvinn.
  • Kver XXIX: blöð 220-227, 4 tvinn.
  • Kver XXX: blöð 228-235, 4 tvinn.
  • Kver XXXI: blöð 236-243, 4 tvinn.
  • Kver XXXII: blöð 244-251, 4 tvinn.
  • Kver XXXIII: blöð 252-259, 4 tvinn (blað 259 er blaðleif við innri spássíu).
  • Kver XXXIV: blöð 260-267, 4 tvinn.
  • Kver XXXV: blöð 268-275, 4 tvinn.
  • Kver XXXVI: blöð 276-283, 4 tvinn.
  • Kver XXXVII: blöð 284-291, 4 tvinn.
  • Kver XXXVIII: blöð 292-299, 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 158-168 mm x 125 mm.
  • Línufjöldi er ca 28-30.
  • Griporð víðast hvar.

Ástand

  • Handritið er óinnbundið. Vigdís Kristjánsdóttir tók bókina úr bandi og gerði við hana í apríl 1976.

Skrifarar og skrift

Með einni hendi; fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á blaði 1r stendur skrifað: Sigmundur Erlingsson á þessa bók, á þessa bo.
  • Á blaði 299v má m.a. lesa Halldór, Eg … að … Hafsteinn vildi selja mér bók.

Band

Handritið er óinnbundið. Utan um kverin er umslag með tveimur hörðum spjöldum og reimum. Á öðru spjaldinu er miði með nafni stofnunarinnar og númeri handrits. Greina má annan undirliggjandi miða.

Fylgigögn

Skrifbókaropna (frá viðgerðartímanum 1976) er brotin um fjóra blaðbúta:

  • Tveir virðast hafa verið í hlutverki spjaldblaðs; annar er aðeins rifrildi.
  • Einn hefur líklega verið saurblað. Á hann er m.a. ritað nokkrum sinnum Sögubók og þess getið að Sögubókin þessi er væn og stór. Á blaðinu kemur og fyrir nafnið Halldór.
  • Fjórða blaðið gæti verið bútur úr sendibréfi (umslagi); þar má m.a. lesa nöfnin Ólöf Guðmundsdóttir og Arnfríður Jónsdóttir.

Skrifbókarblað (frá viðgerðartímanum 1976) er brotið um nokkra blaðbúta

  • Smátexti reynist vera á einum bútnum. Samskonar pappír og skrift og er á sendibréfsbútnum (umslagsbútnum) sem talað var um í tengslum við fjórða blaðið hér að framan.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á nítjándu öld (sbr. skrift?).

Ferill
Ekkert er vitað um handritið fyrir utan það sem fram kemur á blaði 1r þar sem fram kemur að Sigmundur Erlingsson hefur átt bókina. Hugsanlega má lesa frekari vitneskju um eignarhald hennar og feril úr pennaprufunum sem gerð er grein fyrir hér fyrir framan (sjá: Spássíugreinar og aðrar viðbætur).
Aðföng
Handritið var keypt frá Jóhanni Gunnari Ólafssyni bæjarfógeta á Ísafirði (sbr. ópr. lista SÁM).

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

VH skráði í september 2010.

Notaskrá

Titill: , Partalopa saga
Ritstjóri / Útgefandi: Præstgaard Andersen, Lise
Umfang: XXVIII

Lýsigögn