Hér eru nokkrar sögur eða kaflar af Münchausen barón. Virðast vera kaflar úr bókinni Sögur Münchausen sem kom fyrst út árið 1785 eftir þýska höfundinn Rudolf Erich Raspe. Fljótlega var verkið þýtt yfir á ýmis tungumál auk þess sem út kom aukin þýsk útgáfa eftir Gottfried August Bürger. Kaflarnir segja frá hetjudáðum og afrekum Münchausen og flokkast sem lygasögur, frásagnir sem erfitt er að trúa. Hér eru í tvíriti sagan af ferð Münchausen baróns til Rússlands og Pétursborgar auk átta sagna af sjóferðum hans víða um höf.
Pappír.
Flest blöð bundin saman.
Lbs 2559-2573 8vo, keypt haustið 1938 af Jóni Jónatanssyni á Öngulsstöðum, en hann fékk handritin eftir föður sinn, Jónatan Þorláksson á Þórðarstöðum.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins , 1. aukabindi, bls. 89.
Kjartan Atli Ísleifsson frumskráði 7. júní 2024.