„Ono-Masticon Locorum“
AM 269 8vo inniheldur sama verk í annarri útfærslu.
„Aðal-sýsla. Pars Est-landiæ, versus ...“
„... Ægis-nes esformaverunt.“
Á forsíðu kemur fram að Jón Ólafsson frá Grunnavík telji Grím Thorkelín höfund verksins, en Jón hafi tekið þetta eintak árið 1775 til eigin afnota. Hins vegar skrifar Grímur Thorkelin á spássíu að Eggert Ólafsson sé upprunalegur höfundur, en hann hafi aukið við og endurbætt (sjá bl. 1r).
Þrjú kver:
Með hendi Jóns Ólafssonar frá Grunnavík, sprettskrift og kansellíbrotaskrift í áhersluorðum og fyrirsögn.
Blekdregnir litlir upphafsstafir við upphaf kafla.
Band frá 1995 (221 mm x 191 mm x 27 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra nýju bandi. Safnmark á kili.
KBAdd 30 I 4to er í sama bandi og KBAdd 30 II 4to, KBAdd 30 III 4to og KBAdd 30 IV 4to.
Handritið er skrifað í Kaupmannahöfn 1775.
Niels Borring gerði við í apríl til ágúst 1995. Handritið er í nýlegu bandi. Nákvæm lýsing á ljósmyndun, viðgerð og kverskiptingu fylgdi með.
Svart-hvítar ljósmyndir á NorS Sprogsamlinger frá 1995-1996.