„Öllum mönnum þeim sem þetta bréf sjá eður heyra senda Arnór Jónsson, Þórdur Eyjólfsson prestar, Björn Brynjólfsson, Sturli Þorgrímsson, Jón Þórólfsson, Gudmundur Einarsson og Leifur Einarsson …“
„… setjum við fyrrskrifaðir menn okkar innsigli fyrir neðan þetta okkar vitnisburðarbréf, skrifað á Ríp í Hegranesi, á sama ári og degi síðar en fyrr segir.“
Íslenzkt fornbréfasafnIII. nr. 408, bls. 496-498. Kaupmannahöfn 1893
Próventusamningur Loðins Skeggjasonar og frú Ingibjargar abbadísar á Reynistað, þar sem Loðinn leggur á borð með sér, meðal annars, jörðina Heiði í Gönguskörðum (DI III:496). Afskrift frá 1609 af skjali frá 1394. Önnur afskrift er í AM Ap. 5670 og eftir henni er bréfið prentað í Fornbréfasafninu.
Óþekktur skrifari. Ef til vill Eyjólfur Jónsson eða Grímur Ólafsson.
Á bakhlið er ritað 1394 og 1609. Einnig: „Bref vmm heide oc selfòr a Breidstade fra vijk.“
Umbúðir frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Tvö innsigli eru fyrir bréfinu, allvel varðveitt. Þau eiga Eyjólfur Jónsson og Grímur Ólafsson og staðfesta þeir með þeim þetta transskriptabréf.
Bréfið var skrifað á Íslandi.
Frumbréfið var ritað 11. janúar 1394 að Stað í Reynisnesi en afskriftin 3. og 4. apríl 1609 á Ríp í Hegranesi.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu í desember 1996.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.