Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 84 8vo

Páls saga postula hin meiri ; Ísland, 1540-1560

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(2r-53v)
Páls saga postula hin meiri
Upphaf

Vér höldum hátíð í dag …

Niðurlag

… af amnía secula seculorum. Amen

Baktitill

Hér lýkur [trú(?)] sögu Páls postula.

Athugasemd

Blöð 1, 54-55 eru upprunalega auð.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
55 blöð (125-137 mm x 90-100 mm).
Tölusetning blaða

Síðari tíma blaðmerking með bleki: 1-55.

Kveraskipan

Samtals 7 kver.

  • Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
  • Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
  • Kver VII: blöð 49-55, 3 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Leturflötur er ca 98-104 null x 65-70 null.
  • Línufjöldi er á bilinu 19-20.
  • Kaflaskipting. Fyrirsagnir og upphafsstafir eða eyður fyrir slíkt sýna kaflaskil (sjá t.d. blað 11v).

Ástand

Fremstu blöðin eru skítug og slitin, einkum blað 2r.

Bókin er skæld og hefur gengist til; kápan skýlir blöðunum ekki að fullu þar sem hún er mjórri og hafa blaðbrúnir sumra blaðanna bognað af þeim sökum.

Skrifarar og skrift

Skrifari óþekktur. Léttiskrift.

Skreytingar

Litaðir upphafsstafir eða leifar þeirra fremst í handritinu (sjá t.d. blöð 3r og 7v).

Litaðir upphafsstafir eða fylltir og skreyttir með mynd eða flúri (sjá t.d. blöð 2r, 23v-24r).

Leifar af rauðum fyrirsögnum fremst í handritinu (sjá t.d. blöð 3r og 6v).

Strikað í stafi með rauðu bleki á stöku stað, t.d. á blaði 7r.

Á blöðum 8r, 26r, 28r, 32r, 34r, 38r, 41r, 42r, 47r og 51r eru rissaðar fígúrur, laufmynstur o.þ.h. (hægra horn blaða, neðst).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á blöðum 54-55 er pennakrot. Þar má lesa nokkur nöfn. Nafn Gísla Þorkelssonar kemur fyrir á blaði 54v, Guðmundar Thorsteinssonar og Styrbjarnar Thorsteinssonar á blaði 55v (sjá: Ferill).

Band

Kápa (140-145 mm x 90-95 mm x 25 mm) úr ósútuðu skinni (sjá nánar: Ástand).

Fylgigögn

Seðill með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um aðföng.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett ca 1550 (sjá  ONPRegistre , bls. 466), en til loka 15. aldar í  Katalog II , bls. 384.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Magnúsi Jónssyni skólameistara frá Leirá (sjá seðil), en sr. Árni Ólafsson að Hálsi í Álftafirði hafði sent honum bókina til Kaupmannahafnar þegar hann var þar stúdent. Séra Árni hafði fengið handritið hjá Oddi Gíslasyni í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð í Kirkjubæjarkirkjusókn. En faðir hans, Gísli Þorkelsson bóndi, átti það (sjá AM 435 a 4to, blöð 15v-16r).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1984.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog II , bls. 384 (nr. 2287). Kålund gekk frá handritinu til skráningar 9. janúar 1890. ÞS skráði 29. janúar 2002. VH jók við og lagfærði skráningu skv. reglum TEI P-5, 11. júlí 2011

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Shook, L. K., Widding, Ole
Titill: The Lives of the Saints in Old Norse Prose: A Handlist, Mediaeval Studies
Umfang: s. 294-337
Titill: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Ritstjóri / Útgefandi: Foote, Peter
Umfang: 14
Lýsigögn
×

Lýsigögn