Skráningarfærsla handrits

AM 585 b 4to

Úlfars saga sterka ; Ísland, 1688

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-16v)
Úlfars saga sterka
Titill í handriti

Sagann af Vlfare sterka

Skrifaraklausa

Anno 1688 17 Dec.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír með vatnsmerkjum.
  • Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam (bl. 1, 2, 7, 8, 10, 12, 13, 15).
Blaðfjöldi
16 blöð (200 mm x 160 mm).
Tölusetning blaða

Blaðmerking með blýanti 1-16, síðari tíma viðbót.

Leifar af eldri blaðsíðumerkingu með svörtu bleki 55-86 (framhald af AM 585 a 4to).

Kveraskipan

Tvö kver:

  • Kver I: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16 (9+16, 10+15, 11+14, 12+13), 4 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Letur flötur er 175 mm x 125 mm.
  • Línufjöldi er 30-32.
  • Kaflatal á spássíum.
  • Griporð, pennaflúruð.

Ástand

  • Blöð óhrein og dökk.
  • Jaðar er dekkri en blöðin sjálf.
  • Dökkur blettur á efri spássíu, nær miðju, á öllum blöðum.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Þórðarsonar, kansellískrift, griporð í fljótaskrift (sbr. Stegmann 2018, bls. 170; sjá einnig Agnete Loth 1978, bls. 40).

Skreytingar

Upphafsstafir skreyttir (allt að 6 línum), sumir með blómaskreytingum. Stafurinn Þ bl. 1r: andlit með skegg.

Á bl. 1r, fyrirsögn og efsta lína dreginn hærri og með annari skriftartegund.

Skreyting við eða umhverfis griporð.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á bl. 14v eru spássíugreinar, erfitt að lesa þar sem blek hefur dofnað.

Band

Band frá árunum 1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu, leifar af límmiða á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi árið 1688 (sjá skrifaraklausu og  Katalog I, bls. 746).

Það var áður hluti af stærri bók (sbr. AM 585 a 4to). Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 536 4to, AM 585 a 4to, AM 345 4to AM 585 c 4to, AM 585 d 4to og AM 585 e 4to (sjá Stegmann 2018, bls. 165-171).

Ferill

Jón Jónsson erfði stóra handritið, sem blöðin tilheyrðu, eftir föður sinn og skrifara Jón Þórðarson.

Árið 1710, gaf Markús Bergsson Árna Magnússyni stóra handritið, sem síðan endurraðaði því (Stegmann 2018, bls. 171-178). Það er ekki vitað hvernig handritið kom til Markúsar, en í athugasemdum sínum, nefnir ÁrniSigmundur Sæmundsson er sagður hafa verið fyrri eigandi. (Sjá AM 435 a 4to, bl. 82r).

Árið 1730 voru blöðin hluti af No 585 in 4to (sbr. AM 456 fol., bl. 23v).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 30. nóvember 1982.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
  • MJG uppfærði með gögnum frá BS, 26. febrúar 2024.
  • ÞS skráði 15. ágúst 2001.
  • Tekið eftir Katalog I, bls. 746 (nr. 1456). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?.
Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt í pappa á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í nóvember 1979.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn