„Annall. fra fædingu Keyſara Karlamagnus (Datum Hanns | fædingar Ao 742 722 og inn til Datum 1400 (!). og eg Hig eptir flat|eyar Annal Styrmers preſts Froda Samanleſinn og lagfærdur ep|tir reittu [sic] Atali ſem eg hefi fundid gietad af Donſkum Iſlend|ſkum og Latinſkum Hyſtorijs Chronichum og Sagnabokum | Endurbættur og vidaukinn“
Nær yfir árin 742-1369.
Tvídálka að hluta (1r-4r).
Aðeins er skrifað á efri helming af bl. 4 og 13, hinn hefur verið skorinn burt.
Tvær hendur.
I. bl. 1r-10v.
II. bl. 11r-13r.
Á bl. 13v eru annálsgreinar fyrir árin 1359-1369, sem bætt hefur verið við síðar.
Band frá júlí 1976.
Fastur Seðill (203 mm x 152 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Úr bréfi Halldórs Þorbergssonar til mín 1700. Annál hafi ég, sem ég veit yður mun alkunnugur, og ég hygg af Oddaannál útskrifaðan, allt frá Carolo Magno, og að mestu þar að sem Björn tiltekur, resterar nokkur ár. 1701 skrifaði ég Halldóri Þorbergssyni til og bað hann ljá mér þennan Oddaannál. “
Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 627. Bl. 1r-10v (árin 742-1330) eru skrifuð af óþekktum skrifara, en bl. 11r-13r (árin 1331-1358) eru með hendi Halldórs Þorbergssonar.
Árni Magnússon bað Halldór Þorbergsson að lána sér handritið árið 1701 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. september 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1976. Eldra band fylgdi.