Hefst á árinu 1044, en upphafið virðist glatað (sbr. seðil).
Hér og þar eru ártöl á spássíum.
Pappaband.
Um eldra band, sjá seðil.
Fastur seðill (133 mm x 103 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Annales hosce mihi dono dedit Dominus Christianus Wormius anno 1706. Eru úr Flateyjarbok, og vantar framan við. Þeir voru, þá ég þá eignaðist, innfestir í annað pergament en þetta og var þar utan á ritað með hendi sálugs doktors Olai Wormii: Annales ex Australi Islandia. Ég trúi herra Gísli Oddsson hafi sent þá Wormio.“
Handritið er tímasett til fyrri hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 618.
Árni Magnússon telur að Gísli Oddsson biskup hafi sent annálana til Ole Worm. Árni fékk þá hins vegar frá Christiani Worm árið 1706 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. október 1973.
Tekið eftir Katalog I , bls. 618 (nr. 1179). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í november 1886. GI skráði 22. november 2001. Már Jónsson skráði seðla Árna Magnússonar í februar 2000.