Forsettelse af Efterretninerne om Tildragel sene med Bierget Katla udi April og fölgende Maanuder 1766. (Bl. 1r).
„Disse ved Trykken udgivne Efterretninger holdte og ved den 5. juli 1766. Jeg ...“
„... ikke kand komme i den mindste ligning.“
Hannes Finnson gaf út Efterretning om Tildragelserne ved Bierget Hekla árið 1767.
Tvö kver:
Hannes Finnsson, fljótaskrift.
Handritin NKS 1671a I 4to, NKS 1671a II 4to, NKS 1671a III 4to, NKS 1671a IV 4to og NKS 1671a V 4to eru bundin saman í eina bók.
Aldur bands óþekkt (219 mm x 181 mm x 9 mm).
Bókaspjöld úr pappa klædd pappír með flæðimynstri. Kjölur og horn klædd brúnu leðri.Límmiði á fremra spjaldi með safnmarki.
Handritið er í nýlegri öskju (224 mm x 182 mm x 18 mm). Límmiði framan á öskju með merki Árnastofnunar og safnmarki.
Með handritinu fylgir lítill brúnn merkimiði frá Safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn. Á honum stendur: „Håndskr. Afd. | Ny kgl. Saml. | 1671, 4° | Nogle Breve og | Beretninger om | Eruptioner paa | Island: 1775, 1766, | 1767, 1785, 1821-23. |1 bind“
Á bl. 10r koma fyrir nöfnin Þorsteinn Halldórsson og Sigurður Erlendsson, skrifað við Reyðarvatn 1. nóvember 1766.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. september 1986.
Áður í safni Konunglega bókasafnsins í Kaupmannahöfn.
MJG skráði samkvæmt TEI P5 reglum 9. október 2023 ; bætt við skráningu 16. janúar 2024.
Skráning Kristian Kålunds á handritinu er aðgengileg á Katalog over de oldnorsk-islandske Håndskrifter i Det store kongelige Bibliotek og i Universitetsbiblioteket, bls. 197-198.