Handrit í tveimur hlutum, AM 748 I a 4to (bl. 1-6) og AM 748 I b 4to (bl. 7-28). Fyrri hlutinn er á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn. Í blaðtölum hér er tekið tillit til fyrri hlutans. Byrjar óheil.
„… garð er það kallað …“
„… byr ræfurs sköpuð ævi.“
„Allt er hljóð það er kvikindis eyru má skilja …“
„… sem vitrir menn hafa forðum saman sett vi[sic] fundið var“
„Skáldskaparmál og kenningar“
„Skáldskapur er kallaður skip dverga og jötna …“
Næst á eftir kemur grein á latínu (tvær línur) um „evphonia“ (sjá blað 28r og Katalog II, bls. 174 (nr. 1863)). Efni blaða 1-6 (AM 748 I a 4to) er samkvæmt sömu heimild: Hábarðsljóð, Baldursdraumur, Skírnismál, Vafþrúðinsmáls, Grímnismál, Hymiskviða og Völundarkviða
„Íslendingadrápa; Haukur Valdísarson orti.“
„Bera skal líð fyr lýða …“
„… snar hólmgöngu.“
Fjögur kver.
Band frá 1995 (215 mm x 180 mm x 20 mm) frá 1995.
Spjöld er klædd fínofnum striga, grófari strigi er á honum og kili.
Blöð eru saumuð á móttök.
Saurblöð, eitt hvoru megin, tilheyra þessu bandi.
Þrír seðlar merktir ''a', 'b', 'c' eru á milli saurblaðs og blaðs 1r:
Handritið er skrifað á Íslandi og það er tímasett til ca 1300-1325 (sjá ONPRegistre, bls. 464), en um 1300 í Katalog II, bls. 174-175.
Samkvæmt handritaskrá Árna Magnússonar (AM 435 a 4to, blöð 93v-95r; sjá hér að neðan) fékk hann handritið að gjöf árið 1691 frá séra Halldóri Torfasyni á Bæ (Gaulverjabæ) í Flóa. Þá var utan um það kápa er áður hafði verið notuð utan um verk eftir Lipsius og Árni telur óefað komna úr bókasafni Brynjólfs Sveinssonar biskups. Í handritinu sjálfu er ekki miklar upplýsingar að fá. Á blaði 15r er á spássíu röð mannanafna, að hluta með bæjarnöfnum (17. öld). Grein á blaði 25r bendir til að handritið hafi verið notað sem kennslubók (um 1600). Vísa hefur verið skrifuð á blað 8r (um 1600).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. nóvember 1996. Fyrri hluti þess (AM 748 I a 4to) er á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Gert var við handritið og það bundið í júní 1977 til júlí 1978.
Aftur gert við og bundið í júní til desember 1995. Með handritinu frá Kaupmannahöfn fylgdi nákvæm lýsing á ljósmyndun og viðgerð.