„Þáttur af Þorleifi Ásgeirssyni kölluðum jarlaskáld“
„Maður er nefndur Ásgeir rauðfeldur …“
„… og margri annarri óspekt“
„Heill sá er skrifaði og þeir sem hlýddu. Finis.“
og lýkur hér frá Þorleifi að segja.
Úr Ólafs sögu Tryggvasonar.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með blýanti, 1-4. Aftasta blaðið er ómerkt.
Stakt blað og 2 tvinn (aftara tvinnið er innskotsblað).
Með hendi séra Ólafs Gíslasonar á Hofi í Vopnafirði, fljótaskrift.
Band frá árunum 1772-1780 (208 mm x 166 mm x 4 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Safnmark og titill sögunnar skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr prentaðri bók.
Fastur seðill (203 null x 162 null) fremst með hendi Árna Magnússonar með titli og upplýsingum um uppruna handritsins á rektó hlið: „Af Þorláki jarlaskáld. Úr bókum sem ég fékk af síra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.“
Fastur miði (37 null x 154 null) efst við blað 1r með yfirskriftinni „Úr Sögu Ólafs kóngs Tryggvasonar“ á rektóhlið.
Árni Magnússon tók úr bók sem hann fékk hjá skrifara, séra Ólafi Gíslasyni (sjá seðil fremst).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. júní 1982.