„Stutt Agrip Vm | Galldra Konſt|er og þeirra verkaner“
„Tvær titilsíður með nafni höfundar og ártali og tileinkun til Brynjólfs Sveinssonar biskups í Skálholti m.e.h. höfundar.“
Dálkarnir eru afmarkaðir með grænum strikum frá hægri til vinstri.
Ein hönd.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Fastur seðill (tvinn) (207 mm x 158 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Síra Sigurðar Torfasonar um galdra. Fengið hjá monsieur Þormóði Torfasyni 1712 í octobri. Þetta exemplar er copia rituð (að mér virðist) með hendi síra Þorleifs Claussonar. Mun síra Sigurður hann hafa látið þetta exemplar rita, til að senda mag[ister] Brynjólfi til að censurera. Variæ lectiones in margine, eða réttara að segja correctiones, eru teknar úr öðru exemplare sem ég og fékk hjá nefndum monsieur Þormóði í sama sinn. Það exemplar var ekki heldur (að mér virðist) ritað með eigin hendi síra Sigurðar, en í því hafði hann með eigin hendi corrigerað hér og hvar, svo að það í þennan máta var nær til að 'passem' fyrir original en þetta. En það gildir álíka hvert, því bókin í sér sjálfri er að litlu gagni. Ég bíheld heilt þessu exemplarenu, propter censuram Bryniolfi, sem ekki stóð á hinu öðru exemplarenu. Höndlar mest um þá hluta sem ekki neitt koma við discutiendam materiam. Raisonerar parum concime þess á milli. Allegerad dicta scripturæ í allri annarri merkingu en þau skilið eiga. Gjörir oft futiles instantias til að solvera þær. Tylus stórorður, parum aptus sacro operi etc. Yfir allt almúgalegur og humi repens. Interdum plane barbarus.“
Skrifað af sr. Þorleifi Kláussyni 1655 (titilsíða), en tímasett til 17. aldar í Katalog II , bls. 117.
Árni Magnússon fékk frá Þormóði Torfasyni 1712.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 23. september 1976.
Tekið eftir Katalog II , bls. 117 (nr. 1743). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 19. september 2001.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.