„Saga Þórðar hreðu“
„Þórður hét maður, son Hörða-Kára …“
„… Þórður hreða varð sóttdauður.“
Höfum vær ekki fleira heyrt með sannleik af honum sagt. Og lýkur hér með sögu Þórðar hreðu.
Leifar af eldri blaðmerkingu (90-117).
6 kver:
Skrifað að mestu af Jóni Erlendssyni, blendingsskrift.
Óþekktur skrifari bl. 4v-5v, blendingsskrift.
Óþekktur skrifari neðst á bl. 14r, blendingsskrift.
Stór skreyttur upphafsstafur á bl. 1r.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli (298 mm x 198 mm x 15 mm).
Fastur seðill (70 mm x 172 mm) með hendi Árna Magnússonar á saurblaði 1r: „Þórðar saga hreðu. Með hendi séra Jóns Erlendssonar í Villingaholti. Úr bók frá Jóni Þorlákssyni.“
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 99, en virkt skriftartímabil Jóns Erlendssonar var ca 1625-1672.
Handritið er eftirrit AM 551 d β 4to.
Handritið var áður hluti af stærri bókum.
Stóru bókina sem handritið tilheyrði þegar Árni Magnússon fékk það kom til hans frá Jóni Þorlákssyni sýslumanni Múlasýslu (sbr. seðil).
Minni bókin sem blöðin voru fyrst í hefur verið í eign Brynjólfs Sveinssonar. Það er ekki vitað hvernig það kom í hendur Jóni Þorlákssyni. (Valla-Ljót saga (STUAGNL 63), bls. viii-ix).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. apríl 1974.
BS bætti við upplýsingar varðandi uppruna 30. apríl 2024. EM lagfærði kveraskipan 12. júní 2023. ÞÓS skráði vatnsmerki 18. júní 2020. ÞS skráði 12. september - 20. nóvember 2008. DKÞ færði inn grunnupplýsingar 17. september 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 25. nóvember 1885 (sjá Katalog I 1889:100 (nr. 168) .