„Saga af Hávarði Ísfirðingi“
„Það er upphaf þessarar sögu, að Þorbjörn hét maður …“
„… og lúkum vér þar nú þessari sögu.“
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-56. Auðu blöðin aftast eru ótölusett.
Fjögur kver.
Með hendi séra Ketils Jörundssonar, síðléttiskrift.
Band frá árunum 1880-1920 (215 mm x 170 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum.
Saurblöð tilheyra bandi.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600. Á því eru brot úr Þingfararbálki og Kristindómsbálki.
Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar. Hvorirtveggju með upplýsingum um lesbrigði.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 667, en virkt skriftartímabil Ketils Jörundssonar var á árunum 1620-1670.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. september 1975.