„Víglundar saga“
Handritið er skrifað eftir AM 160 fol..
„Haraldur hinn hárfagri var son Hálfdanar svarta …“
„… Sannast það hér, að enginn veit sína ævina fyrr en öll er.“
Endast hér nú þessi saga af Víglundi hinum væna.
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-90. Öftustu blöðin eru ótölusett.
Sex kver.
Með hendi Jóns Torfasonar, fljótaskrift.
Band frá árunum 1880-1920 (214 mm x 170 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.
Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, með brotum af leiðbeiningum fyrir presta um fæðandi konur.
Fastur seðill (213 mm x 156 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna handritsins. Var upprunalega saurblað: „Ritad epter hendi Sr Jons i Villingahollte ur bok tilheyrande hans hój Excellence Hr Ulr. Chr. Güldenlewe.“
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 671.
Samkvæmt AM 477 fol. átti að vera hér fyrir framan Tabb. Geneal., en er þar ekki lengur.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júlí 1975.