„… Nú er frá því fyrst að segja …“
„… Tekur nú þaðan af að kyrrast um málin. Og lýkur hér nú frásögu þessari.“
Vantar framan af. Sagan hefst í 8. kafla (15. kafla miðað við útgáfuna í Íslenzkum fornritum). Bl. 14v autt.
„Saga af Gunnlaugi Ormstungu og Rafni“
„Þorsteinn hét maður, hann var Egilsson …“
„… þótti öllum mikið fráfall Helgu sem ván var að.“
Og lýkur hér nú sögu Gunnlaugs Ormstungu.
„Saga af Helga og Grími Droplaugarsonum“
„Þorgerður hét kona hún bjó í Fljótsdal …“
„Þangbrandur prestur kom til Íslands …“
Og lyktar svá að segja frá þeim Droplaugarsonum.
„Saga af Vilhjálmi sjóð“
„Það er upphaf þessarar sögu að Ríkarður …“
„… og ríkti þar lengi með drottning Astronomia móður sinni.“
Og endast hér saga af Vilhjálmi sjóð og hans framaverkum.
„Saga af Fertram og Plató“
„Artús hefur kóngur heitið …“
„… þessu stríði lofaði …“
Vantar aftan af. Virðist enda í 15. kafla.
Tólf kver:
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Óbundið. Arkir saumaðar með hamptaumi.
Handritið var skrifað á Íslandi á 18. öld.
Handrit að líkindum úr eigu Þorvarðar Bergþórssonar á Leikskálum í Haukadal, Dalasýslu.
ÞS skráði í maí og júní 2019.