Rímur af Konráð keisarasyni og Róðbert svikara. Ortar af Guðbrandi Erlindssyni anno MDCCLX. Rímur af Hrólfi Gautrekssyni. Ortar af Árna Sigurðssyni anno 1822.
Blöð eru notkunarnúin.
Aftasta tvinnið er laust úr bandinu.
Þarfnast lagfæringar.Band (170 mm x 105 mm x 17 mm) er sennilega frá síðari hluta nítjándu aldar. Pappaspjöld eru klædd rauð-/svarrauðyrjóttum pappír. Blár shirtingur er á kili. Saurblöð tilheyra þessu bandi og mynda tvinn við spjaldblað, bæði að framan og aftan. Aftara spjaldblað er límt yfir texta úr Rímum af Hrólfi Gautrekssyni.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 85, 86, 87, 88 og 89.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á nítjándu öld.
VH skráði í ágúst 2010.
„Valur herjans fl …“
„… Óðinn knúðan síðast leið í stóð. Endir.“
Tíu rímur. Í Rímnatali eru rímurnar sagðar ortar af Guðbrandi Einarssyni. Þar eru tilgreind þrjú handrit sem varðveita rímurnar en sagt að mansöngva vanti. Hér eru rímurnar með mansöngvum. Hndr.: Lbs. 1789, ÍB 149 brot, ÍB 294 8vo (sjá Rímnatal 1966: 317).
Sjö kver.
Sennilega með hendi Jónasar Jónssonar (sbr. blöð 30r og 48v).
Fyrirsagnir og fyrsta lína í kafla eru til dæmis með stærra letri en er á meginmáli (sjá t.d. blöð 30r og 34v).
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á nítjándu öld.
„Rímur af Jasoni bjarta ortar af Jóni Þorsteinssyni“
„Fyrst skal herjans horna lá …“
„… Fýsir mig nú hvíld að ná.“
Óheilar. Rímurnar eru ortar fyrir Herdísi?(Rímnatal 1966: 285). Hndr.: Lbs. 576 4to, Lbs. 693 4to, Lbs. 1192 4to, Lbs. 1417 4to, Lbs. 1571 4to, Lbs. 1623 4to, Lbs. 1666 4to, Lbs. 2148 4to, Lbs. 134 8vo, Lbs. 679 8vo, Lbs. 733 8vo, Lbs. 978 8vo, Lbs. 1927 8vo (brot), Lbs. 1942 8vo (brot), Lbs. 1992 8vo, Lbs. 2082 8vo, Lbs. 2145 8vo, Lbs. 2203 8vo, Lbs. 2232 8vo, Lbs. 2250 8vo, Lbs. 2314 8vo, Lbs. 2402 8vo; JS 344 4to, JS 428 8vo, ÍB 307 4to, ÍB 148 8vo, ÍB 160 8vo, ÍB 167 8vo, ÍB 176 8vo, ÍB 479 8vo (brot), ÍB 673 8vo, ÍBR 46 4to, ÍBR 59 4to, ÍBR 117 8vo (sjá Rímnatal 1966: 285).
„Rímur af Hrólfi Gautrekssyni, ortar af Árna Sigurðssyni fyrrum á Skútum, anno 1822“
Hér er aðeins titilsíða rímnanna sýnileg; aftara spjaldblað hefur losnað frá og sést þá að skrifarinn hefur skrifað a.m.k. tvö blöð til viðbótar af efni rímnanna; annað blaðið hefur verið límt á kápuspjaldið, hitt er þar ofan á og ofan á það hefur núverandi spjaldblað verið límt. Í þessu síðasta kveri gætu því hafa verið þrjú tvinn.
Upprunalegt blaðsíðutal 1-73. Blaðsett af skrásetjara með blýanti 49-85.
Fimm kver.
Óþekktur skrifari, síðfljótaskrift; nöfn, fyrirsagnir og fyrsta lína í rímu með sprettskrift.
Titilsíður eru með uppfylltum stöfum og á þeirri fyrri (sjá 1r) er lítilsháttar flúr í kringum stafi.
Handritið var skrifað á Íslandi, sennilega á nítjándu öld.