Strikað hefur verið yfir sumt og margt er óheilt. Meðal efnis er: Um skyldu sýslumanna til að gera hvers manns lög og rétt (bl. 3 og áfr.), Um ógilda alþingis dóma (bl. 17 og áfr.), Ámóti allra óærlegra manna eiðum (bl. 23 og áfr.), Gegn alþingissamþykktinni 1644 um nauðsynleg skylduhjú (bl. 31. og áfr.) og Um umboðs ómaga uppátseyrir (bl. 55 og áfr.).
Blöðin að hluta til fúin og illa farin.
Ein hönd að mestu.
Band frá því í ágúst 1973.
Að mestu með hendi Þorsteins Magnússonar, en hann lést 1655. Handritið er tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 499.
Árni Magnússon fékk handritið frá Kort Magnússyni í Árbæ (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 17. júlí 1974.
Viðgert í desember 1964.
Bundið inn í ágúst 1973. Gamalt band fylgdi með.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.