„Sagan af Árna biskupi Þorlákssyni“
Sami texti og í AM 217 a fol.
Þrjár vísur um Árna biskup, samdar 1650. Sami texti og í AM 217 a fol. og sömu vísur.
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Dárahöfuð með 7 litlum bjöllum á kraga, Hermes kross, 3 meðalstórir hringir og stafur // Ekkert mótmerki (bl. 2, 4, 6, 12-18, 20, 25).
Blaðmerking með svörtu bleki 1-27, síðari tíma viðbót.
6 kver:
Ein hönd, kansellískrift.
Griporð skrifuð með fljótaskrift.
Upphafstafir eru ca. 2-3 línur og eru blekdregnir skrautstafir.
Fyrirsagnir og fyrsta lína texta eru víðast með stærra letri en meginmálið.
Griporð, flúruð með hornalínu, stundum lykkju utanum.
Litlir bókahnútar í lok efnisgreinar.
Band frá 1976. Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk.
Eldra pappaband frá ca 1771-1780. Á bókarkápu er titill og safnmark skrifað með dökku bleki. Á kili eru tveir límmiðar, með safnmarki.
Seðill með hendi Árna Magnússonar: (47 mm x 167 mm): „Árna biskups saga Þorlákssonar, fengið af Jóni Daðasyni.“
Handritið er skrifað á Íslandi. Tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 176.
Það var áður hluti af stærri bók. Í þeirri bók voru einnig blöð sem nú eru í AM 108 fol., AM 113 d fol. og AM 341 fol.
Árni Magnússon fékk bókina sem handritið tilheyrði frá Jóni Daðasyni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 16. mars 1977.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júní 1976. Eldra band fylgir.
Gömul viðgerð á bl. 1.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.