Detaljer om håndskriftet

PDF
PDF

AM 420 b 4to

Lögmannsannáll ; Island, 1362-1390

Tekstens sprog
islandsk

Indhold

(1r-11v)
Lögmannsannáll
Bemærkning

Það vantar aftan af handritinu og einnig vantar af blaði 1.

Annállinn nær yfir árin 293-1392 en hefur að mati Kålunds upprunalega verið lengri. Blaðstubburinn (blað 1) hefst á árinu 102 og endar við árið 247.

Tekstklasse

Fysisk Beskrivelse / Kodikologi

Materiale
Skinn.
Antal blade
i + 11 + i blöð (320 null x 254 null), þar með talið blað merkt 1bis. Blað 1 er blaðstubbur.
Foliering

Síðari tíma blaðmerking 1, 1bis -10.

Lægfordeling

Blöð eru saumuð á móttök í kverum eða stök; tvö kver, þrjú stök blöð:

  • Kver I: blöð 1, 1bis-4, 2 tvinn + 1 stakt blað.
  • Blað 5: 1 stakt blað.
  • Kver II: blöð 6-8, 1 tvinn + 1 stakt blað.
  • Blað 9: 1 stakt blað.
  • Blað 10: 1 stakt blað.

Layout

  • Tvídálka.
  • Leturflötur blaðs er ca 280-290 null x 205-220 null (hvor dálkur ca 90-120).
  • Línufjöldi á fullskrifuðum blöðum er á bilinu ca 44-56.
  • Á blöðum 1-4 er stafapar fyrir framan hverja línu í dálki. Þessi stafapör eru hluti af táknum rímfræðinnar þar sem árin eru merkt á sérstakan hátt eftir því á hvaða vikudegi þau hefjast.
  • Víða eru óútfylltar eyður sem skrásetjari skilur hugsanlega eftir fyrir óskráða atburði, sbr. t.d. á blaði 1bisr-v.

Tilstand

Skinnið í handritinu er fremur illa farið. Blettir, göt og sprungur einkenna flest blöðin:

  • Af blaði 1 er einungis varðveittur strimill af efri hluta þess næst kili.
  • Blað 1bis er illa farið við ytri spássíu.
  • Göt eru hér og þar, t.d. á blöðum 1bis, 5-6 og 10.
  • Á blaði 6 er viðgert gat við efri kantinn og skerðir það texta.
  • Myglublettir eru á flestum blöðum (sjá t.d. blöð 4r-5v).
  • Stór dökkur blettur sem nær yfir hluta af innri dálki að kili, smitast í gegnum allt handritið; hann er greinilegastur í handritinu miðju (sjá t.d. blöð 5v-6r). Fleiri slíkir smitblettir eru til staðar; annar minni er t.d. fyrir miðju við ytri jaðar blaða.

Skrifttype

  • Blað 10 er með annarri hendi; árléttiskrift.

Udsmykning

  • Fyrirsagnir eða efni sem ætlað er að draga fram skil í textanum er með textaskrift og stærra letri en meginefnið. Það á einnig við um stafapörin (sjá umbrot).

Indbinding

Band (340 null x 285 null x 22 null) er frá mars 1973.

 Spjöld eru klædd fínofnum striga, leður er á hornum og kili. Saurblöð tilheyra þessu bandi.

Vedlagt materiale

  • Laus seðill með upplýsingum um forvörslu bands.

Historie og herkomst

Herkomst

Handritið er skrifað á Íslandi og að mestu með hendi séra Einars Hafliðasonar á Breiðabólstað í Vesturhópi (blöð 1r-9v (sjá um hendur hér fyrr)), og er uppskrift hans tímasett til ca 1362-1380, en blað 10r-10v til ca 1380-1390 (sjá  ONPRegistre , bls. 453). Í  Katalog I , bls. 625, er handritið tímasett til síðari hluta 14. aldar.

Proveniens

Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Vídalín biskupi, en þá hafði það lengi legið í Skálholti og eigendasaga þess óviss (sbr. athugasemd í AM 435 a 4to). Um annálana í AM 420 a-c segir Árni Magnússon í AM 435 a 4to: Þessi 3. annála volumina, eða fragmenta, láu í Skálholti eftir mag. Þórð og höfðu þar legið um hans tíð. Er óvíst hvert þau hafa verið kirkjunnar eign, eða óvart eftir orðið af bókum mag. Brynjólfs, í eigu Skálholts registri standa þau. Ég fékk þau af mag. Jóni Vídalín. Sjá einnig athugasemdir á seðlum í AM 428 4to. Sömuleiðis á seðlum í AM 427 a 4to.

Erhvervelse

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. apríl 1976.

Yderligere information

Katalogisering og registrering

VH skráði handritið 27. maj 2009; lagfærði í november 2010  GI skráði 23. november 2001. Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. april 1886 í Katalog I , bls. 625-626 (nr. 1186).

Bevaringshistorie

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1973. Eldra band fylgdi ekki.

Billeder

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 7. juli 1972.

Bibliografi

Forfatter: Eiríkur Þormóðsson
Titel: Misskilið orð í AM 420 b 4to, Steffánsfærsla fengin Stefáni Karlssyni fimmtugum
Omfang: s. 16-18
Forfatter: Eiríkur Þormóðsson, Guðrún Ása Grímsdóttir
Titel: Oddaannálar og Oddverjaannáll,
Omfang: 59
Forfatter: Storm, Gustav
Titel: Islandske annaler indtil 1578
Forfatter: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titel: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Forfatter: Hreinn Benediktsson
Titel: Linguistic studies, historical and comparative
Forfatter: Oresnik, Janes
Titel: Gripla, An Old Icelandic dialect feature: iæ for æ
Omfang: 5
Titel: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Redaktør: Kålund, Kristian
Titel: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Redaktør: Den arnamagnæanske kommision
Titel: , Jóns saga Hólabyskups ens helga
Redaktør: Foote, Peter
Omfang: 14
Forfatter: Stefán Karlsson
Titel: Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts, Introduction
Omfang: s. 9-61
Forfatter: Stefán Karlsson
Titel: Bókagerð Ara lögmanns Jónssonar, Gripla
Omfang: 19
Forfatter: Sverrir Jakobsson
Titel: Saga, Ísland til leigu : átök og andstæður 1350-1375
Omfang: 52:1
Forfatter: Ólafur Halldórsson
Titel: Gripla, Þýskan í Grænlendinga sögu (Samtíningur)
Omfang: 8
[Metadata]
×
  • Land
  • Island
  • Sted
  • Reykjavík
  • Institution
  • Árni Magnússon-instituttet for islandske studier
  • Opbevaringssted
  • Handritasvið
  • Håndskriftsamling
  • Safn Árna Magnússonar
  • Katalognummer
  • AM 420 b 4to
  • Nøgleord
  • Annaler
  • Yderligere billeder
  • Farvek.Farvek.
  • XML
  • Vis som XML  
  • PDF alt i ét
  • InformationInformation
  • Bemærkninger
  • Send feedback om håndskriftet  

[Metadata]