Skráningarfærsla handrits

Thjskjs Dipl. Isl. Fasc. XVII,K27/1

Fornbréf

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-1v)
Fornbréf
1.1 (1r)
Fornbréf
Upphaf

Ég Ísakur Brandsson barnfæddur í Fnjóskadal ...

Niðurlag

... skrifað á Hálsi í Fnjóskadal þann 20. dag Aprilis Anno Domini 1591 ...

Efnisorð
1.2 (1v)
Fornbréf
Upphaf

Upplesið á Hálsi á manntalsþingi...

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Skinn.

Blaðfjöldi
1 blað (110 mm x 125 mm).
Umbrot

Eindálka.

Leturflötur er 285 mm x 195 mm.

Línufjöldi er 14 línur.

Ástand

Brotið hefur verið upp á u. þ. b. neðstu 21-24mm blaðsins (svo í raun er það 131-134mm á lengd). Í uppábrotið hefur verið gerð rifa og í hana þræddur innsiglisþvengur. Á skinnblaðinu sjást för eftir að það hefur verið brotið saman í tvígang, en að öðru leyti er skinnið nokkuð slétt. Letur er dökkt og lítið máð.

Skrifarar og skrift

Ísakur Brandsson.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á bl. 1v hefur verið skrifað með annrri hendi: Lit: A. Þar hefur einnig verið stimplað með stimpli Landsskjalasafns.

Innsiglisþvengur virðist vera mjó ræma úr handritablaði þar sem eitthvað hefur staðið, en hann er það mjór að ekki er hægt að lesa heil orð, einungis einn eða tvo stafi á stangli.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

SHH skráði 2. júlí 2021.

Lýsigögn
×

Lýsigögn