Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Blaðið liggur í öskju með SÁM 161 og 163.
Handritið var líklega skrifað á Íslandi 21. febrúar 1745.
Ártalið er skrifað neðst á bl. 1v en þar fyrir ofan, að því er virðist með annarri hendi, ártalið 1826.
Á umslagi sem var áður utan um blaðið stendur með hendi Ólafar Benediktsdóttur bókavarðar: „Snepillinn datt úr kassa með seðlum Lárusar Blöndals um Sverris sögu“.
Rit Lárusar Blöndals um Sverris sögu kom út hjá Stofnun Árna Magnússonar 1982 en Lárus var yfirmaður handritadeildar Landsbókasafns.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið 1982.
ÞS skráði í september 2020.