Skráningarfærsla handrits

SÁM 131

Sögubók ; Ísland, 1871-1890

Titilsíða

Fornmannasögur af i. Sigurgarði frækna og Valbrandi svikara. ii. Ketlerus keisaraefni. iii. Úlfi Uggasyni og Aríus. iv. Hálfdáni Barkarsyni og Hildigeir. v. Parmes Loðinbyrni. vi. Nikulási leikara. vii. Ambrosius og Rósamunda. viii. Sigurgarði frækna og fóstbræðrum hans Högna og Sigmundi. Skrifaðar á Hvítadal, 1871-2 G. S.

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r-38v (bls. 1-74))
Sigurgarðs saga og Valbrands
Titill í handriti

Sagan af Sigurgarði frækna og Valbrandi svikara

Upphaf

Fyrir Englandi réði einn ágætur herra …

Niðurlag

... og áttu mörg börn, syni og dætur, þó hér sé ei fleira af skrifað í þessari sögu

Skrifaraklausa

Hvítadal þann 12. nóvember 1871 (38v).

Baktitill

og endar hér með sagan af Sigurgarði frækna.

Athugasemd

Blöð 2r-5v ásamt hálfu blaði 6r eru skrifuð með bleikum penna en síðan er skipt yfir í dökkan.

Efnisorð
2 (39r-104r (bls. 75-205))
Ketlerus saga keisaraefnis
Titill í handriti

Sagan af Ketlerus Keisaraefni

Upphaf

Fyrir Ungaría réði kóngur sá …

Niðurlag

... tóku þá synir hans ríki eftir hann og þóttu nafnfrægir höfðingjar um sína tíð

Skrifaraklausa

Enduð á Hvítadal 8. desember 1871 (104r).

Baktitill

… og endar hér með sagan af Ketlerus keisara syni efni.

Efnisorð
3 (104r-118v (bls. 205-234))
Úlfs saga Uggasonar
Titill í handriti

Sagan af Úlfi Uggasyni og Aríusi. Fyrsti kapítuli.

Upphaf

Uggi hefur konungur heitið …

Niðurlag

… og endar svo þessi saga.

Skrifaraklausa

Á Hvítadal 24. desember 1871 (118v).

4 (118v-126v (bls. 234-250))
Hálfdánar saga Barkarsonar
Titill í handriti

Sagan af Hálfdáni Barkarsyni

Upphaf

Á þeim tíma er Fylkir kóngur vór í Norvegi …

Niðurlag

... en af hans framaverkum höfum vér ekki heyrt

Skrifaraklausa

Á jóladaginn 1871 (126v).

Baktitill

og endar hér þessi saga af Hálfdáni Barkarsyni.

5 (127r-157v (bls. 251-312))
Parmes saga loðinbjarnar
Titill í handriti

Sagan af Parmens Albertssyni Loðinbirni. Fyrsti kapítuli.

Upphaf

Fyrir sunnan Alpafjöll sem eru takmörk milli Valllands og Frakklands …

Niðurlag

... hann fékk þangað að utan pápíska presta en var sjálfur lútherskrar trúar

Skrifaraklausa

Hvítadal 6. janúar 1872 (157v).

Baktitill

… og endum vér hér söguna af Parmes loðinbirni.

Efnisorð
6 (158r-183v (bls. 313-364))
Nikulás saga leikara
Titill í handriti

Sagan af Nikulási leikara. Fyrsti kapítuli

Upphaf

Svo segja fróðir menn og meistarar að sá kóngur hafi ráðið fyrir Ungaría …

Niðurlag

… og endar svo þessa sögu.

Skrifaraklausa

Hvítadal 12. janúar 1872 Guðbr. Sturlaugsson (183v).

Efnisorð
7 (183v-197r (bls. 364-391))
Ambrósíus saga og Rósamundu
Titill í handriti

Sagan af Ambrosíó og Rósamundu

Upphaf

Í Norðimbralandi er liggur undir Frakklands veldi …

Niðurlag

...lifðu þau hjón í mestu gleði og heimsins eftirlæti til dauðadags og þóttu hin mestu göfugmenni í því landi

Skrifaraklausa

Hvítadal 18. janúar 1872 Guðbrandur Sturlaugsson (197r).

Baktitill

og endar hér söguna af Ambrósíus og Rósamundu.

Efnisorð
8 (197v-224r (bls. 392-445))
Sigurgarðs saga frækna
Titill í handriti

Sagan af Sigurgarði frækna Ríkarðssyni, Herði Hundstjöl og Sigmundi Stíganda

Upphaf

Ríkarður er kóngur nefndur …

Niðurlag

... en Sigurgarður varð kongur í Tartaríu og réði þar fyrir til elli

Skrifaraklausa

Hvítadal 6. febrúar 1872 Guðbr. Sturlaugsson (224r).

Baktitill

ljúkum vér svo sögunni af Sigurgarði frækna og þeim bræðrum Sigmundi Stíganda og Herði Hundstjöl.

Efnisorð
9 (224v-225r)
Rostungsvísur
Titill í handriti

Rostungs vísur

Vensl

Kvæðið er einnig varðveitt í Lbs 437 8vo og SÁM 74.

Upphaf

Rostungurinn fór á frón …

Skrifaraklausa

Hvítadal 4. maí 1887 Guðbrandur Sturlaugsson (225r).

Athugasemd

Í handritinu er kvæðið ranglega eignað Hallgrími Péturssyni en þær upplýsingar hefur G. S. dagsett 16. nóvember 1890 (225r).

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 224 + i bl. (199 mm x 165 mm).
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 2-445. Blað 157r og blöð 223r-224 eru ótölusett.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 168-173 mm x 138-142 mm.
  • Línufjöldi er ca 23-25.
  • Leturflötur er afmarkaður með blýanti að neðri spássíu undantekinni.

Skrifarar og skrift

Með einni hendi, skrifari er Guðbrandur Sturlaugsson í Hvítadal.

Skreytingar

Kaflanúmer og upphafslínur kafla eru á nokkrum stöðum með bleiku letri (t.d. á blöðum 17v, 19r og 20v). Einnig er fyrirsögn og upphafslínur sögunnar um Ketlerus keisaraefni bleiklitaðar (38r).

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Búið er að bæta blaðsíðutali við titla á titilsíðu með svörtum penna.
  • Búið er að skrifa nafnið Samson efst á titilsíðu.
  • Stimpill Guðbrands Sturlaugssonar, G. Sturlaugsson er á blaði 2r.

Band

Band (205 mm x 172 mm x 28 mm): Bókaspjöld úr pappa klædd brúnum pappír með leðurkili og -hornum. Á kili er gylling og á einnig stendur þar Riddarasögur með gylltum stöfum.

Ytri klæðning orðin slitin.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað í Hvítadal á Íslandi árin 1871-1890 (sbr. blöð 1r og 225r).

Ferill
Frá erfingjum Jóns M. Samsonarsonar.
Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi fékk handritið, ásamt fleiri handritum, afhent til varðveislu 1. október 2014.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
skráði handritið í nóvember 2015

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn