Tvö kver.
Öll blöð laus frá kili og sum blettótt.
Gat á blöðum 2-9 en texti óskertur.
Með einni hendi, skrifari er sbr. blað 1r K. D. R.
Seinni tíma viðbót um höfund fyrri rímunnar á spássíu blaðs 29v, skrifuð með bláum kúlupenna.
Band (166 mm x 105 mm x 8 mm): Pappaspjöld klædd hvítum og svörtum pappír. Spjaldhorn og kjölur klædd fínofnu, brúnu efni.
Fremra spjald er klætt að innan með línustrikuðu blaði. Á því stendur m.a. „Skrifbók Margeirs Jónssonar“.
Handritið liggur í grárri pappaöskju með SÁM 122, 124, 125, 126 og 127.
Ytri klæðning fremra spjalds er byrjuð að losna.
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1853 (sbr.37r).
EÞ skráði í október 2015.